Einn sá besti færir sig um set Valur Páll Eiríksson skrifar 2. júní 2026 13:31 Garrett er á leið til Los Angeles Rams. Nick Cammett/Getty Images Enn eru þrír mánuðir þar til NFL-deildin fer af stað vestanhafs og menn farnir að safna í lið. Nokkur stór tíðindi áttu sér stað í gær, þar á meðal er einn allra besti leikmaður deildarinnar á leið til Los Angeles.
Myles Garrett hefur verið einn allra besti, ef ekki hreinlega besti varnarmaður deildarinnar síðustu ár. Hann sló met yfir leikstjórnandafellur á einni og sömu leiktíðinni í fyrra sem leikmaður Cleveland Browns. Fyrir um ári síðan lýsti Garrett yfir vilja sínum að yfirgefa Browns-liðið til að leika fyrir félag sem berst um Ofurskálina. Hann hefur verið stór fiskur í lítilli tjörn í Cleveland en eftir þessar yfirlýsingar fékk hann nýjan samning og varð á meðal launahærri leikmanna deildarinnar. Hann þakkaði traustið með met góðri spilamennsku á síðustu leiktíð en löngunin til að spila fyrir betra lið virðist þó enn krauma undir niðri. Greint var frá því í gær að Garrett sé á leið til Los Angeles Rams. Cleveland Browns fá í staðinn fyrir Garrett varnarmanninn Jared Verse og nokkra valrétti í nýliðavalinu. Raunar þrjá. Val í fyrstu umferð 2027, val í annarri umferð 2028 og í þriðju umferð 2029. Um er að ræða ein stærstu skipti varnarmanns í sögu NFL. Jared Verse er einnig stórkostlegur varnarmaður svo Hrútarnir í Kaliforníu missa einn góðan, þó þeir fái einn betri. Brown hefur sýnt að hann er stórgóður útherji en hann gat ekki mikið í fyrra og var í raun með allt á hornum sér.Mitchell Leff/Getty Images Útherjinn A.J. Brown sem hefur leikið með Philadelphia Eagles síðustu ár er þá einnig á förum. Hann átti erfitt ár í fyrra og var ósáttur við minna hlutverk í sóknarleik liðsins. Hann er á leið til New England Patriots fyrir valrétt í fyrstu umferð 2028 og í fimmtu umferð 2027. Brown hefur verið stuðningsmaður Patriots frá æsku og fær því draumaskiptin. Hann birti mynd af sér í Tom Brady treyju á samfélagsmiðlum í ljósi skiptanna til Massachusetts. Odell Beckham Jr. er kominn aftur í bláan lit Risanna í New York.Getty/ Grant Halverson Odell Beckham Jr. hefur þá samið aftur við New York Giants sem hefur leitað að útherja síðustu vikur. Beckham hóf feril sinn með Giants árið 2014 og lék þar við góðan orðstír til 2018. Síðan hefur hann spilað fyrir Cleveland Browns, Los Angeles Rams, Baltimore Ravens og Miami Dolphins. Þörfin á útherjum hjá Giants var í raun svo mikil að þeir fengu auk þess tvo til viðbótar. Þá Juju Smith-Schuster og Braxton Berrios til að fylla í hópinn. Russell Wilson er hættur eftir langan feril.RJ Sangosti/MediaNews Group/The Denver Post via Getty Images Auk þess varð staðfest í gær að skór leikstjórnandans Russell Wilson eru komnir upp í hillu eftir 14 leiktíðir í NFL. Hann var síðast leikmaður New York Giants í fyrra en lék auk þess með Denver Broncos og Pittsburgh Steelers undanfarin ár. Hann er þekktastur fyrir tíma sinn hjá Seattle Seahawks frá 2012 til 2021 og leiddi liðið til sigurs í Ofurskálinni árið 2014. Wilson hættir til að taka að sér sjónvarpsgigg hjá CBS.
NFL Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Gullboltinn afhentur í kvöld Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Sjá meira