Furðar sig á því að þeir sem vildu minnka báknið fjölgi ráðum Oddur Ævar Gunnarsson og Bjarki Sigurðsson skrifa 2. júní 2026 11:28 Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingarinnar ásamt Hildi Björns verðandi borgarstjóra. Vísir/Vilhelm Oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík furðar sig á því að flokkarnir sem hafi lofað því að minnka báknið í borginni láti það verða sitt fyrsta verk að fjölga nefndum í borgarstjórn. Hann segir Samfylkingu munu styðja góð mál.
Fyrsti borgarstjórnarfundur á nýju kjörtímabili fer fram í dag. Nýr meirihluti í Reykjavík mun leggja fram tólf tillögur og þá verður lagt til að stofnuð verði þrjú ný ráð í borginni, leikskóla- og dagskólaráð, menningarráð og öldungaráð. Stafrænt ráð yrði samkvæmt tillögunum lagt niður og breytingar gerðar á verkefnum menningar- og íþróttaráðs, sem yrði í framhaldinu íþrótta- og tómstundaráð. Hvernig líst þér á tillögur þessa meirihluta? „Það er nú bara misjafnt,“ segir Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík. Hann segist hlakka til að taka þátt á sínum fyrsta fundi og hefja kjörtímabilið. „Við munum veita þeim aðhald en styðja góð mál. Það vekur athygli að það sé verið að fjölga nefndum í ráðunum þegar þessir flokkar sem eru nú í meirihluta töluðu mikið um að minnka báknið og skera fitu og svona í aðdraganda kosninganna. Svo er það kannski þetta fánamál sem slær mig illa en við sjáum hvað setur þarna inni.“ Svo er talað um að byrja með daggæslu og að borgin taki þátt í rekstri hennar? „Það verður einhver umræða um þetta á eftir. Það að taka leikskólann til hliðar og leikskóla og daggæslu sérstaklega fyrir er eitthvað sem við setjum okkur ekki upp á móti, en það þarf að gera þetta á réttum forsendum og við teljum að þetta sé eitthvað sem borgin eigi að gera í sameiningu.“ Hildur tekur við sem borgarstjóri, hvernig líst þér á hana? „Mér líst bara vel á Hildi. Þau háðu góða kosningabaráttu og sigruðu kosningarnar, svo það er eðlilegt að hún taki við sem borgarstjóri og hún er með reynslu. Hugmyndafræðilega erum við ekki alveg á sama stað og við munum beita okkur fyrir því að það verði góð stemning í borgarstjórn og við munum eins og ég sagði áðan styðja við góð mál.“ Pétur ræddi þessi mál og fleiri í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Borgarstjórn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Samfylkingin Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira