„Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. júní 2026 07:20 Victor Wembanyama átti ekki sinn besta dag og San Antonio Spurs tapaði á heimavelli í fyrsta leiknum í úrslitaeinvíginu. Getty/Gregory Shamus New York Knicks náði forystunni í úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar í körfubolta eftir tíu stiga endurkomusigur á San Antonio Spurs á útivelli, 105-95, í leik eitt í nótt.
Heimamenn í Spurs leiddu með fjórtán stigum í þriðja leikhluta, 65-51, en gestirnir frá New York sneru leiknum við og unnu síðustu átján mínútur leiksins, 54-30. Jalen Brunson skoraði 30 stig fyrir New York, Karl-Anthony Towns lauk leik með 18 stig og 12 fráköst en OG Anunoby skoraði 17 stig. Jalen Brunson var enn á ný magnaður á lokamínútunum þegar New York Knicks kom til baka í seinni hálfleik og tryggði sér sigur í leik eitt.Getty/Gregory Shamus Knicks-liðið hefur nú unnið tólf leiki í röð í úrslitakeppninni og jafnað þar með næstlengstu sigurgöngu í einni úrslitakeppni í sögu NBA. Spurs vann tólf leiki í röð árið 1999 og Warriors vann fyrstu fimmtán leiki sína í úrslitakeppninni árið 2017, en bæði lið urðu meistarar þau ár. „Ég held að við vitum hvað við þurfum að gera. Ég held að við séum nokkuð samheldinn hópur,“ sagði Brunson. Jalen Brunson dropped 30 tonight.But none of his buckets were BIGGER than this one!Knicks take Game 1 in San Antonio 👏 https://t.co/sdoQ9qo5CE pic.twitter.com/oYjhquaWdn— NBA (@NBA) June 4, 2026 Brunson skoraði þrettán stig í fjórða leikhluta, aðeins sex færri en San Antonio náði að skora sem lið í þeim leikhluta, og innsiglaði sigurinn með snúningsskoti um leið og hann féll í gólfið þegar 38 sekúndur voru eftir. „Hann er algjör keppnismaður,“ sagði Mike Brown, þjálfari Knicks. „Á stærstu stundunum stígur hann fram. Það er það sem verðmætustu leikmenn eiga að gera.“ Knicks, sem lauk leiknum á 11-0 áhlaupi, skráði sig enn frekar á spjöld sögunnar. Þeir urðu fyrsta liðið til að sigra San Antonio í fyrsta leik lokaúrslitanna – Spurs hafði unnið alla sex slíka leiki áður. Þetta er líka í fyrsta sinn sem Spurs lendir undir í lokaúrslitum. Victor Wembanyama var með 26 stig og 12 fráköst fyrir Spurs en hann hitti aðeins úr 6 af 21 skoti sínu í sínum fyrsta leik í lokaúrslitum. Stephon Castle skoraði 17 stig og þeir Julian Champagnie og Dylan Harper skoruðu 16 stig hvor fyrir Spurs. „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það,“ sagði Wembanyama. Leikur 2 fer fram á föstudag í San Antonio. 12 STRAIGHT POSTSEASON WINS.HAVEN'T LOST SINCE APRIL 23.1-0 SERIES LEAD IN THE NBA FINALS.THE NEW YORK KNICKS ARE ON FIRE 🔥 pic.twitter.com/B4LIlgPqu8— NBA (@NBA) June 4, 2026
NBA Mest lesið Frækinn sigur Englendinga á Azteca Fótbolti Ronaldo á sínu síðasta HM: „Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár“ Fótbolti Leik Mexíkó og Englands seinkað um klukkutíma Fótbolti „Eins og þjóðhátíðardagur og gamlárskvöld í senn“ Fótbolti Týndur í tíu daga: Ætlaði að fara á HM en skilaði sér aldrei á staðinn Sport Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Skítafýla af þessu“ Fótbolti Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Ég vissi ekki að þetta væri 1. apríl“ Fótbolti Ekki tapað fótboltaleik í heilt ár Fótbolti Skera niður hjá stelpunum Enski boltinn Fleiri fréttir Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Sjá meira