Topptjöldum fylgir nýtt frelsi á ferðalögum Topptjöld og vagnar 5. júní 2026 13:19 Topptjöld og vagnar mæta þörfum þeirra sem vilja ferðast létt, ekki með neitt í eftirdragi en samt með allan nauðsynlegan búnað. Hátt í 400 manns mættu á viðburð hjá Topptjöldum og vögnum þar sem nýjasta lína IKAMPER topptjalda var kynnt, auk rafmótorhjóla frá Talaria. Sigurður Þorsteinsson, einn eiganda Topptjalda og vagna, segir sífellt stærri hóp kjósa frelsið sem felst í því að ferðast með topptjald. IKAMPER topptjöldin eru þar í fararbroddi og standist íslenskar aðstæður allan ársins hring. „
Viðburðurinn tókst mjög vel. Topptjöld og vagnar mæta þörfum þeirra sem vilja ferðast létt, ekki með neitt í eftirdragi en samt með allan nauðsynlegan búnað. Þetta er mjög breiður hópur, allt frá ungu fólki sem vill komast annað en bara á næsta tjaldstæði og upp í fólk á áttræðisaldri sem er búið með tjaldvagna og hjólhýsapakkann og vill áfram ferðast um landið og njóta náttúrunnar, bara með nettari lausn. IKAMPER hefur verið vinsælasta topptjaldið á Íslandi undanfarin ár og það ekki að ástæðulausu,“ segir Sigurður. Klippa: Topptjöld og vagnar kynntu það nýjasta í útilegubúnaði Nýja línan, IKAMPER Skycamp 4.0, inniheldur fjögurra manna, þriggja manna og tveggja manna tjöld sem eru verulega vel útbúin, byggð til að endast, henta íslenskum aðstæðum afar vel og bjóða þar að auki upp á ótrúleg þægindi. „Skelin er hönnuð með tvöföldu lagi af einangrun, sérstakri kork klæðningu í botni og dúkurinn stenst rigningu og rok án þess að mikið vindhljóð heyrist, en andar samt vel. Skelin utan um tjaldið stenst hitabreytingar allt árið um kring. Sjálfur hef ég til dæmis verið með tjaldið á bílnum allt árið og geymi alltaf svefnpokana og kodda þar inni. Ef við erum á ferðinni og okkur dettur í hug að gista, þá er allt klárt,“ útskýrir Sigurður. „Dýnan er síðan algjör leikbreytir. Ég fullyrði að það er enginn að fá í bakið á þessum dýnum,“ segir Sigurður en í nýjustu IKAMPER línunni eru uppblásnar svampdýnur með minnissvampi. Einnig er hægt að fá fortjald við öll IKAMPER tjöldin ef fólk er að hugsa um tjalda til fleiri en einnar nætur. „Og það er líka hægt að skilja fortjaldið eftir ef menn vilja halda tjaldstæðinu sínu og skreppa í sund á bílnum, maður bara pakkar topptjaldinu saman á einni mínútu og skilur allt dótið eftir í fortjaldinu.“ Lausnir fyrir minimalískan ferðamáta Auk IKAMPER selja Topptjöld og vagnar búnað fyrir útivist, svo sem hjóla og skíðafestingar, toppgrindur, palllok og festingar á pallbíla frá ameríska merkinu Kuat. „Það er auðveldlega hægt að taka fjögur til sex hjól með í ferðalagið, auk skíðanna. Við seljum líka búnað sem er sérstaklega hannaður fyrir þessa tegund ferðamennsku. Stólarnir eru samanbrjótanlegir og taka lítið pláss. Eldhúsbúnaðinn er einnig hægt að taka í sundur. Sem dæmi má nefna að ferðagrill tæki hálft skottið, en í AIOKS kerfinu eru eldavél, borð og ferðakassi sem er holur að innan til að geyma allt hafurtaskið.“ „Viðskiptavinir okkar eru alltaf eitthvað að brasa og eru duglegir að tagga okkur. Við fáum myndir nánast vikulega allt árið um kring. Sífellt stærri hópur notar tjöldin á haustin og jafnvel á veturna og lætur veðrið ekki aftra sér í sinni útivist,“ segir hann. Gamla skellinöðrumenningin lifnar við á ný Á viðburðinum voru einnig sýnd rafmótorhjól frá Talaria í mismunandi stærðum. Sigurður segir þau njóta mikilla vinsælda og gaman sé að sjá gömlu skellinöðrumenninguna lifna við á ný „Á hjólin fyrir 13 ára og eldri þarf ekki ökuréttindi og þau fara allt að 25 km á klukkustund á hjóla- og göngustígum. Á hjólin fyrir 15 ára og eldri þarf AM réttindi þ.e. skellinöðrupróf og svo erum við með enn öflugri hjól einnig. Margir foreldrar segja okkur að krakkarnir séu hættir í liggja heima í tölvunni eða símanum og farnir út að hjóla. Þetta er auðvitað ákveðið frelsi fyrir einstaklinginn til að komast leiðar sinnar og foreldrar losna svo við að skutla á æfingar osfrv. Ég upplifði þetta sjálfur ungur á skellinöðru og nú í gegnum son minn, hann varla sást síðasta sumar,“ segir Sigurður kíminn. Rafmótorhjólum fylgi einnig minna bras „Þau eru laus við mótor og blöndungsvesen. Krakkarnir eru frekar að uppfæra hjólin, setja á þau flottari felgur og dekk, skipta um sætisáklæði, höldur osfrv. Lookið verður náttúrulega að vera í lagi. Þau verða meðvitaðri um hvernig rafmagn virkar og hvað 60 volta rafhlaða endist lengi og þar fram eftir götunum,“ segir Sigurður.
Ferðalög Bílar Hjólreiðar Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Fleiri fréttir Fjarstætt að hugsa til þess að þetta myndi enda svona Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót Ef ég hefði komið einu til tveimur árum seinna hefðum við ekki verið að eiga sama samtal Nýja Garmin Fenix 9 sameinar allt það besta í einu úri Ég vissi sjálf að það var ekki í lagi Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu Sjá meira