Handbolti

Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Donni er lykilmaður í liði Skanderborg sem varð í öðru sæti dönsku deildarinnar. 
Donni er lykilmaður í liði Skanderborg sem varð í öðru sæti dönsku deildarinnar.  sa-h.dk

Kristján Örn Kristjánsson og félagar í Skanderborg töpuðu úrslitaeinvíginu gegn Aalborg, sem varð þar með danskur meistari þriðja árið í röð. 

Tvö bestu lið Danmerkur mættust í þessu úrslitaeinvígi en Aalborg sýndi og sannaði hvert besta lið landsins væri. Fyrri leikurinn vannst með einu marki, 30-29.

Aalborg vann svo fjögurra marka sigur, 35-31, í seinni leik liðanna í kvöld. Leikurinn var hnífjafn þar til undir lokin þegar Aalborg steig fram úr með fjórum mörkum í röð.

Kristján Örn, Donni, skoraði tvö mörk fyrir Skanderborg og svitnaði eins og svín.

Reyndar svitnuðu allir, leikmenn, þjálfarar og áhorfendur í Djurslands höllinni í Árósum. Loftræstikerfið var eitthvað lélegt. Heila tvo klukkutíma tók að klára leikinn því dómararnir þurftu að stöðva leikinn nánast í hvert einasta skipti sem leikmaður féll í gólfið.

Þrátt fyrir það var nokkuð mikið skorað í þessum leik og orkustigið ágætt miðað við aðstæður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×