Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Agnar Már Másson skrifar 5. júní 2026 19:22 Víðir Arnar Kristjánsson stakk niður penna á Vísi. Samsett Mynd Þvert á það sem margir halda fram hefur sjaldan verið auðveldara fyrir ungt fólk að kaupa sér húsnæði, að sögn fasteignasala. Hann bendir á að fyrstu kaupendur geti fengið allt að 90% fjármögnun, tekið hlutdeildarlán, nýtt séreignasparnað í fyrstu kaup og nýtt ýmsar aðrar sérlausnir sem ekki voru til staðar áður fyrr. „
Þegar staðan í dag er borin saman við það sem áður var verður erfitt að halda því fram að fyrstu fasteignakaup séu óaðgengilegri en áður. Þvert á móti hafa aldrei verið jafn mörg úrræði til staðar fyrir fólk sem vill komast af leigumarkaði yfir á eignamarkað,“ skrifar fasteignasalinn Víðir Arnar Kristjánsson í skoðanagrein á Vísi. Hann segir að því sé gjarnan haldið fram að ungt fólk eigi sífellt erfiðara með að kaupa sína fyrstu fasteign, en að raunin sé önnur. Stjórnvöld, fjármálastofnanir og jafnvel einkaaðilar hafi komið á fót fjölmörgum úrræðum sem gera fyrstu kaupendum mun auðveldara að komast inn á fasteignamarkaðinn en oft áður. Aftur á móti sé ungt fólk ekki ávallt upplýst um þá möguleika. Vert er þó að taka fram að samkvæmt greiningu Landsbankans frá því í fyrra hefur fasteignaverð hækkað hraðar en laun frá aldamótum og raunvirði íbúðaverðs hefur nánast þrefaldast á þessum tíma. Stýrivextir standa í 7,75 prósentum en Seðlabankinn hækkaði þá síðast í maí. Lánamöguleikar góður Víðir bendir á að með tilkomu hlutdeildarlána frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hafi sú fjárhæð sem fyrstu kaupendur þurfi að fjármagna með hefðbundnu íbúðaláni lækkað. Um eitt þúsund einstaklingar hafi nýtt sér úrræðið til að kaupa sína fyrstu eign. „Þetta getur skipt sköpum fyrir fólk sem hefur lágar tekjur og hefur ekki haft tækifæri til að safna háum fjárhæðum í útborgun.“ Þá tekur hann fram það sem Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri benti á á dögunum, að svigrúmið fyrir fyrstu kaupendur sé enn meira en flestir átti sig á þar sem veita megi undanþágur falli fyrstu kaupendur á greiðslumati vegna fyrstu kaupa. Ef umsækjandi uppfyllir ekki öll skilyrði að fullu getur verið mögulegt að fá undanþágu þegar fyrir liggur skýr mynd af greiðslugetu viðkomandi. Þá telur hann að sú breyting að Seðlabankinn hafi liðkað fyrir fyrstu kaupum með breytingum á lánþegaskilyrðum. Fyrstu kaupendur megi í dag almennt fjármagna allt að 90% af kaupverði fasteignar með láni, á meðan aðrir kaupendur séu almennt bundnir við 80% hámark. Þá segir hann að á undanförnum árum hafi fasteignafélög, verktakar og aðrir einkaaðilar komið fram með fjölbreyttar lausnir sem miði að því að lækka þröskuldinn inn á markaðinn og nefnir þar aftur hlutdeildarlán, en einnig kaupleiguúrræði og aðrar fjármögnunarleiðir sem auðveldi fyrstu skrefin. „Það er auðvitað ekki þannig að allir geti keypt sér fasteign á morgun. Eftir sem áður ráða ekki allir við að kaupa sér fasteign, það er alltaf átak að koma sér inn á fasteignamarkaðinn og takmarkað framboð í ákveðnum eignaflokkum skapar áfram áskoranir. Engu að síður er mikilvægt að horfa á heildarmyndina.“ Fasteignamat hafi ekki haldið í við verðþróun, einungis hækkað um 2,1% á milli ára, og lækkað því hlutfallslega í verði. „Þá hafa fyrstu kaupendur í dag aðgang að úrræðum sem fyrri kynslóðir höfðu einfaldlega ekki. Þeir geta fengið allt að 90% fjármögnun, notað hlutdeildarlán HMS, nýtt séreignasparnað sinn í kaup, nýtt sér sérlausnir frá einkaaðilum og notið meira svigrúms í greiðslumati en áður.“
Húsnæðismál Lánamál Mest lesið Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ölgerðin hækkar verðin Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Innkalla pipar vegna eiturs Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Sjá meira