Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Kristján Már Unnarsson skrifar 7. júní 2026 07:57 Rafmagnsflugvél Heart Aerospace prófuð í akstri á flugvellinum í Plattsburgh í New York-ríki í lok maímánaðar. Heart Aerospace Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace hefur birt myndband af frumútgáfu ES-30 rafmagnsflugvélar sinnar í reynsluakstri á flugvellinum í Plattsburgh í norðurhluta New York-ríkis. Slíkar prófanir á jörðu niðri eru þýðingarmikill þáttur í undirbúningi fyrir fyrsta flugið.
ES-30 er stærsta rafmagnsflugvélin sem komin er þetta langt í þróun, með sæti fyrir 30 farþega. Hún þykir líkleg til að verða brautryðjandi í innleiðingu arðbærs rafknúins farþegaflugs í heiminum, einnig á Íslandi, en Icelandair hefur skrifað undir viljayfirlýsingu um kaup á fimm eintökum. ES-30 flugvélin sýnd í litum Icelandair.Heart Aerospace Eftir að Heart Aerospace tilkynnti fyrir ári að það hefði ákveðið að flytja höfuðstöðvar sínar frá Gautaborg í Svíþjóð til Kaliforníu í Bandaríkjunum hafa þar til núna afar takmarkaðar fréttir borist af smíði flugvélarinnar en hún er talin helsta vonarstjarna fluggeirans til að leiða þróun í átt að sjálfbæru og mengunarfríu atvinnuflugi. Tilraunin sem núna var greint frá var þó aðeins í hægum akstri eftir flugbrautum. Engu að síður segir Heart Aerospace þetta mikilvægan áfanga í prófunaráætlun flugvélarinnar á jörðu niðri fyrir fyrsta flugið og vottun bandarísku flugmálastjórnarinnar FAA. Engin tímasetning er þó gefin upp um hvenær fyrsta flug gæti orðið en stefnt er að tegundarvottun árið 2029. Hér má sjá reynsluakstur flugvélarinnar: Um líkt leyti birtist skýrsla frá rannsóknar- og eftirlitsstofnun fulltrúadeildar bandaríska þingsins, þeirra ríkisendurskoðun, þar sem varað er við því að skortur á nauðsynlegum innviðum gæti tafið innleiðingu rafknúinna flugvéla. Vitnað er í gögn frá FAA sem sýndu að í desember 2025 höfðu aðeins 47 flugvellir í Bandaríkjunum skilgreint hleðslustöðvar fyrir rafknúnar flugvélar í áætlunum sínum. Þjálfun starfsfólks flugvalla væri á frumstigi, þar á meðal slökkviliða í að fást við bruna í rafhlöðum. ES-30 flugvélinni er ætlað að geta þjónað allt að 200 kílómetra löngum flugleiðum á hreinu rafmagni en 800 kílómetra löngum sem tvinnvél eða „hybrid“.Heart Aerospace Ennfremur er bent á að flugmálastjórnin sjálf hafi ekki komið sér upp samræmdu regluverki til að votta rafknúnar flugvélar. Á sama tíma sé tilskipun þingsins um að uppfæra lofthæfistaðla fyrir rafhreyfla, sem átti að ljúka fyrir maí 2027, þegar farin í vaskinn vegna þess að ráðgjafarnefnd, sem sett var í verkefnið, var í raun lögð niður af stjórn Trumps í ágúst 2025. Í tæknilýsingu ES-30 flugvélarinnar segir að rekstrarkostnaður hennar verði verulega lægri en hefðbundinna flugvéla. Stutt flugbrautaþörf og lítill hávaði geri henni kleift að sinna nýjum flugleiðum út frá minni flugvöllum. Hún er sögð þurfa 1.100 metra langa flugbraut og 30 mínútna hleðslutíma milli flugferða. Frumgerðin var fyrst sýnd í Gautaborg haustið 2024 en í fréttinni má einnig sjá tölvugert myndskeið af henni á flugi í litum Icelandair: ES-30 flugvélin verður þó ekki fyrsta rafmagnsflugvélin til að sinna áætlunarflugi. Hér má sjá flugvél sem var á undan:
Flug Orkuskipti Loftslagsmál Icelandair Tengdar fréttir Fresta reynsluflugi rafmagnsflugvélar Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace hefur frestað fyrsta reynsluflugi HX-1 rafmagnsflugvélar sinnar fram á nýtt ár. Fyrirtækið hafði fyrir hálfu ári kynnt að fyrsta flugið yrði á síðasta fjórðungi þessa árs. 4. nóvember 2025 11:27 Áætlunarflug prófað á rafmagnsflugvélum Áætlunarflug á rafmagnsflugvélum er hafið í tilraunaskyni bæði í Noregi og Skotlandi. Fyrst um sinn er þó eingöngu flogið með vörur og póst. 1. apríl 2026 22:11 Yfirgefa Svíþjóð til að hraða þróun rafmagnsflugvélar Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace hefur ákveðið að flytja höfuðstöðvar sínar frá Gautaborg í Svíþjóð til Los Angeles í Kaliforníu. Fyrirtækið segir að með þessu sé ætlunin að efla þróun ES 30-rafmagnsflugvélarinnar og styðja betur við fyrirhugað tilraunaflug. 1. maí 2025 09:45 Kynntu rafmagnsflugvélina sem Icelandair hefur pantað Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace kynnti í dag fyrsta tilraunaeintak þrjátíu sæta rafmagnsflugvélar. Hún gæti orðið fyrsta rafknúna flugvélin í innanlandsflugi hérlendis en Icelandair hefur skráð sig fyrir fimm eintökum. 12. september 2024 22:40 Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Allir mennir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Sjá meira
Fresta reynsluflugi rafmagnsflugvélar Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace hefur frestað fyrsta reynsluflugi HX-1 rafmagnsflugvélar sinnar fram á nýtt ár. Fyrirtækið hafði fyrir hálfu ári kynnt að fyrsta flugið yrði á síðasta fjórðungi þessa árs. 4. nóvember 2025 11:27
Áætlunarflug prófað á rafmagnsflugvélum Áætlunarflug á rafmagnsflugvélum er hafið í tilraunaskyni bæði í Noregi og Skotlandi. Fyrst um sinn er þó eingöngu flogið með vörur og póst. 1. apríl 2026 22:11
Yfirgefa Svíþjóð til að hraða þróun rafmagnsflugvélar Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace hefur ákveðið að flytja höfuðstöðvar sínar frá Gautaborg í Svíþjóð til Los Angeles í Kaliforníu. Fyrirtækið segir að með þessu sé ætlunin að efla þróun ES 30-rafmagnsflugvélarinnar og styðja betur við fyrirhugað tilraunaflug. 1. maí 2025 09:45
Kynntu rafmagnsflugvélina sem Icelandair hefur pantað Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace kynnti í dag fyrsta tilraunaeintak þrjátíu sæta rafmagnsflugvélar. Hún gæti orðið fyrsta rafknúna flugvélin í innanlandsflugi hérlendis en Icelandair hefur skráð sig fyrir fimm eintökum. 12. september 2024 22:40