Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Agnar Már Másson skrifar 9. júní 2026 16:00 „Ríkissaksóknari var því miður ekki með allar upplýsingar í málinu,“ segir lögreglan. Vísir/Vilhelm Lögreglan hefur aftur fellt niður rannsókn á málum er tengjast meintum kynferðisbrotum gegn þremur börnum á leikskólanum Múlaborg. Ríkissaksóknari hafði gert lögreglunni að rannsaka málin betur en lögregla segir þá ákvörðun byggða á misskilningi.
Rúv greindi fyrst frá en Hildur Sunna Pálmadóttir, sviðsstjóri ákærusviðs hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, greinir einnig frá þessu í samtali við Vísi. „Ríkissaksóknari var því miður ekki með allar upplýsingar í málinu,“ segir Hildur og segir að það sem ríkissaksóknari hafi farið fram á að yrði rannsakað betur hafi þegar verið gert en að þær upplýsingar hafi ekki fyrir í þeim gögnum sem Ríkissaksóknari hafði undir höndum þegar ákvörðunin var tekin. Með þessu er öllum málum lögreglu sem tengjast Múlaborg nú lokið, að sögn lögreglu. „Þau fólu okkur að taka [rannsóknina] upp og við gerðum það, en bara að forminu til. Svo lokuðum við málinu aftur,“ bætir Hildur við. Aðeins var kært í einu máli er tengist Múlaborg en þar féll dómur í maí þar sem hinn tvítugi starfsmaður Hannes Valle Þorsteinsson var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn barni á leikskólanum. Greint var frá því í dag að hann hyggðist ekki áfrýja. Í upphafi höfðu mál sautján barna á leikskólanum verið tekin til skoðunar hjá lögreglunni, foreldrar þrettán barna kærðu meint brot starfsmannsins en rannsókn var hætt hjá tíu þeirra og þrjú send til héraðssaksóknara, sem kærði svo aðeins í máli eins barns. Foreldrar fjögurra barna kærðu ákvörðun lögreglunnar til ríkissaksóknara og sendi svo saksóknaraembættið þrjú málanna aftur til rannsóknar hjá lögreglu, sem hefur nú sem fyrr segir fellt þær rannsóknir niður að nýju.
Kynferðisbrot á Múlaborg Kynferðisofbeldi Leikskólar Reykjavík Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira