Benedikt verður lærisveinn Arnórs Ágúst Orri Arnarson skrifar 10. júní 2026 13:14 Benedikt er mættur til Danmerkur. tth holstebro Benedikt Gunnar Óskarsson er genginn til liðs við TTH Holstebro, liðið sem Arnór Atlason þjálfar í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta. Benedikt gerir eins árs samning við félagið í boði fyrirtækisins Rejsechefen.
Benedikt er uppalinn hjá Val á Íslandi en hefur síðustu ár spilað hjá Kolstad í Noregi. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann unnið fjölda meistaratitla og varð síðast Noregsmeistari í vor. TTH Holstebro hefur þann háttinn á að leikmenn liðsins eru í boði ákveðinna fyrirtækja. Ferðaþjónustufyrirtækið Rejsechefen Holstebro styrkir komu Benedikts og hann mun klæðast treyju með merkjum fyrirtækisins. View this post on Instagram Arnór Atlason er þjálfari TTH Holstebro og Benedikt fannst það spennandi tækifæri að skipta til danska liðsins. „TTH Holstebro er spennandi félag og mig hefur lengi langað til að spreyta mig í dönsku deildinni. Þegar tækifærið gafst fannst mér þetta vera rétta skrefið fyrir mig. Ég hlakka til að verða hluti af félaginu og upplifa danskan handbolta af eigin raun. Það verður líka spennandi að spila undir stjórn Arnórs Atlasonar, sem ég álít frábæran þjálfara. Ég hlakka til að þroskast sem leikmaður, sýna mig og sanna í bæði dönsku deildinni og Evrópudeildinni og vonandi taka þátt í að ná góðum árangri fyrir félagið,“ sagði Benedikt á heimasíðu félagsins. Bætir upp fyrir smæðina á öðrum sviðum Þjálfarinn Arnór fór fögrum orðum um leikstjórnandann. „Vegna meiðsla Thomasar Damgaard þurfum við fleiri möguleika í mikilvægri stöðu. Með því leikjaálagi sem við búumst við á komandi tímabili er mikilvægt að við höfum breidd í hópnum. Þrátt fyrir að Benni sé aðeins 23 ára kemur hann með mikla reynslu. Hann hefur unnið meistaratitla bæði á Íslandi og í Noregi, spilað Evrópukeppni og öðlast dýrmæta reynslu í Meistaradeildinni með Kolstad. Þetta er leikmaður sem hefur þegar spilað mikið á háu stigi. Benni er spennandi leikstjórnandi með mikinn hraða í sínum leik og mjög gott handboltahöfuð. Hann tekur góðar ákvarðanir, gerir fá mistök og er fær í að setja samherja sína í góðar stöður. Hann er kannski ekki stærsti leikmaðurinn líkamlega, en hann bætir það upp með hraða sínum, yfirsýn og hæfni til að lesa leikinn. Þetta eru eiginleikar sem passa mjög vel inn hjá okkur,” sagði Arnór á heimasíðu félagsins.
Danski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira