Ísland og Danmörk mætast í hnefaleikahringnum í kvöld Aron Guðmundsson skrifar 12. júní 2026 15:46 Davíð Rúnar Bjarnason er skipuleggjandi Icebox sem er flottasta hnefaleikakvöld sem haldið er hér á landi og þó víðar væri leitað. Icebox 10 hnefaleikakvöldið fer fram í Ólafssal á Ásvöllum í kvöld og hefur aldrei verið stærra. Beðið er með mikilli spennu eftir viðureignum Íslands og Danmerkur í hringnum. „
Ég hef nú alltaf haft stóra drauma en ég byrjaði með þetta í miðjum COVID-19 faraldri í fimm hundruð manna takmörkunum og kunni ekki neitt. Einhver staðar þurfti maður að byrja. Þetta er komið á helvíti góðan stað,“ segir Davíð Rúnar Bjarnason skipuleggjandi Icebox 10 sem hefur stækkað ár frá ári og verður sífellt glæsilegra. Þetta verður í fyrsta sinn sem Icebox fer fram í Ólafssal á Ásvöllum, nánast uppselt er á kvöldið. „Þetta er miklu meiri gryfja. Kaplakriki er æði en hérna eru öll sæti með baki, þú situr fyrir ofan og ert að horfa niður á hringinn. Hvert einasta sæti í húsinu er því geggjað. Nánast hvert einasta sæti í húsinu er sömuleiðis farið. Ég hlakka til að taka á móti fullum sal.“ Hvað eru áhorfendur að fara sjá í kvöld? „Eitthvað nýtt. Ég get lofað ykkur því. Atriði sem hafa ekki sést áður og ólík því sem hafa nokkurn tímann verið. Svo eru að koma Danir hingað. Þrír Danir úr efstu hillu og við setjum okkar menn úr efstu hillu á móti þeim.“ Ísland á móti Danmörku, ekki til sú viðureign tveggja þjóða sem Íslendingar eru spenntari fyrir. „Ég vil aldrei flytja inn boxara sem við eigum bara að hlaupa yfir. Þetta er úr efstu hillu. Toppgaurar en við erum líka með toppgaura í hnefaleikunum hjá okkur og bara kominn tími til að setja þetta inn í hring.“ Nánar verður rætt við Davíð Rúnar Bjarnason um Icebox 10 í Sportpakkanum að loknum kvöldfréttum Sýnar. Þá er Icebox 10 í beinni útsendingu á Sýn Sport í kvöld.
Box Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Körfubolti Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Körfubolti Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Körfubolti Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Körfubolti „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ Sport Fleiri fréttir Dagskráin: Meistaradeildin og Körfuboltakvöld kvenna „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Liverpool með fjögurra marka endurkomu Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Sjá meira