Samþykkja 3,5 prósenta launahækkun Agnar Már Másson skrifar 15. júní 2026 14:10 Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. Vísir Þingmenn samþykktu í dag frumvarp um að að hækka laun kjörinna fulltrúa og embættismanna um 3,5 prósent í júlí, frekar en 9,7 prósenta eins og til stóð.
Laun kjörinna fulltrúa hafa yfirleitt verið uppfærð einu sinni á ári í samræmi við meðallaunahækkun ríkisstarfsmanna það ár. Til stóð að hækka launin um 9,7 prósent. Þess í stað mun launahækkunin miða við 3,5 prósent í ár og á næsta ári, en 1. janúar 2028 taka svo nýjar lagagreinar gildi þar sem miðað verður við launahækkun til samræmis við útreikninga Hagstofu á hlutfallslegri breytingu á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna. Frumvarpið var samþykkt um kl. 13.30 í dag. Launabreytingin hefur meðal annars áhrif á ráðherra, þingmenn og æðstu embættismenn og tekur fyrsta næsta launahækkun gildi 1. júlí næstkomandi. Þingfararkaup hækkar því um tæpar 60 þúsund krónur um mánaðamótin og verður 1.667.683 kr. en alls eru þingmenn með á bilinu tvær til 3,5 milljónir króna í laun á mánuði samkvæmt vef Alþingis þegar tekið er tillit til fastra mánaðarlegra kostnaðargreiðslna (t.d. húsnæðis- og dvalarkostnaðargreiðslna, fasts starfskostnaðar og fasts ferðakostnaðar) og annars kostnaðar (t.d. ferða innan og utan lands, símakostnaðar og starfskostnaðar skv. reikningum). Þrjátíu þingmenn greiddu atkvæði með frumvarpinu en enginn gegn því. Tuttugu sátu hjá en hinir þrettán voru fjarverandi við atkvæðagreiðsluna. Í fyrra hækkuðu laun þingmanna um 5,7 prósent. Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknar, gagnrýndi þó ríkisstjórnina fyrir að ráðast ekki fyrr í aðgerðir til að breyta launum kjörinna fulltrúa. „Það skref hefði átt að gerast í fyrra,“ sagði Sigurður Ingi, sem sat hjá í atkvæðagreiðslunni. „Þetta var fullseint í rassinn gripið.“
Tekjur Rekstur hins opinbera Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Kjaramál Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira