„Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Smári Jökull Jónsson skrifar 20. júní 2026 20:00 Þórunn Sveinbjarnardóttir er forseti Alþingis en þingsályktunartillaga um hátíðahöld vegna 1100 ára afmælis Alþingis var lögð fram af forsætisnefnd. Vísir/Vilhelm Alþingi samþykkti í vikunni að skipa framkvæmdanefnd sem undirbúa á afmælishátíð í tilefni af 1100 ára afmæli Alþingis árið 2030. Gert er ráð fyrir 800 milljóna kostnaði vegna hátíðahaldanna og segir forseti Alþingis um stórmerkan áfanga að ræða.
Tillaga um skipun framkvæmdanefndar og í kjölfarið vinnu í tengslum við hátíðahöldin var samþykkt samhljóða á þingi. Forseti Alþingis segir að áhersla verði lögð á fræðslu og lýðræðislega þátttöku um allt land. „Þetta er stórmerkur áfangi, Alþingi er elsta þjóðþing í heimi og hefur að sjálfsögðu skyldum að gegna sem slíkt,“ segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, í samtali við fréttastofu. Gert ráð fyrir 800 milljóna kostnaði Hún bætir við að þessari merku sögu beri að halda á lofti. „Og koma því þannig fyrir að ekki verði því bara fagnað með eftirminnilegum hætti árið 2030 heldur að þau tímamót marki líka annan árangur. Að við náum öðrum markmiðum eins og að fræða fólks um sögu lands og þjóðar og um gildi lýðræðisins.“ Gert er ráð fyrir 52 milljóna kostnaði vegna þóknunar framkvæmdanefndar og launa framkvæmdastjóra. Þá er gert ráð fyrir 750 milljóna fjárveitingu vegna útgjalda í tengslum við viðburði og verkefni. Hægt að tengja við önnur merk tímamót Kallað var eftir hugmyndum frá almenningi í desember sem snerust flestar að almenningsfræðslu, varðveislu sögunnar auk listsköpunar og sýninga. „Við fengum einhverjar 70-80 hugmyndir hingað í byrjun árs og síðan verður það auðvitað hlutverk þessarar nefndar að kalla eftir fleiri hugmyndum og samstarfsaðilum og setja niður hvernig best er að minnast þessara tímamóta.“ Árið 2030 verða líka liðin 50 ár frá því Vigdís Finnbogadóttir var kjörin forseti Íslands, fyrst kvenna í heiminum í lýðræðislegum kosningum. Í greinargerð með þingsályktunartillögu um skipun framkvæmdanefndarinnar var þetta sérstaklega tekið fram. „Það mun örugglega fléttast vel og fallega saman á því ári,“ segir Þórunn að lokum.
Alþingi Tímamót Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira