„Verulega áhugaverður fávitaskapur“ Sigurgeir Þorkelsson skrifar 17. júní 2026 22:03 Betur fór en á horfðist þegar stór pallbíll með með fjallajeppa í eftirdragi reyndi framúrakstur í blindbeygju. Ökumaður bifhjólsins hvetur fólk á ferð til að fara að gát. Innsent „Þetta var verulega áhugaverður fávitaskapur, vægt til orða tekið,“ segir Halldór Guðmundsson mótorhjólamaður, sem mætti stærðarinnar pallbíl í blindbeygju nú á laugardaginn síðasta. „
Það eru fjörutíu metrar, hámark fimmtíu, í hann þegar ég sé hann.“ Um var að ræða stærðarinnar pallbíl með stóran fjallajeppa á kerru í eftirdragi. „Þetta eru örugglega samtals sjö, átta tonn,“ segir Halldór, sem er þó hinn rólegasti þegar hann ræðir atburðinn. Bíllinn stefndi á móti Halldóri á miklum hraða, á öfugum vegarhelmingi í blindbeygju. Myndband af atvikinu má sjá hér að neðan. Klippa: Mótorhjólamaður slapp við skrekkinn Halldór útskýrir hvernig sjá má þegar hann kippir í bremsuna, aftara hjólið læsist og rásar örlítið til á veginum. Halldór segir hjólið gamalt og ekki búið nútíma ABS-bremsukerfi. Halldór hélt ró sinni í atvikinu og segist nokkuð fljótt hafa séð að hann myndi geta smogið milli bílanna sem æddu á móti honum á báðum akreinum með því að koma sér fyrir á miðjum veginum. Hugurinn hafi þá hins vegar leitað beint til eiginkonu hans sem stýrði bílnum beint á eftir honum. Engin slys urðu þó þar sem ökumaður pallbílsins ákvað að sveigja út af veginum. „Þetta er svívirða í blindbeygju þar sem er óbrotin lína,“ segir Halldór sem segist leita til Vísis í von um að ná til ökumanna sem kynnu að vilja leika eitthvað álíka eftir á vegum landsins, en í hönd fara mestu ferðavikur landans. Heillína var á vegarhelmingi pallbílsins og þess sem lítið trjárjóður byrgir sín þar sem keyrt er inn í beygjuna. „Þetta eru aðstæður sem maður á aldrei að búa til, segir Halldór sem sjálfur var á leiðinni norður til Akureyrar. Að hans sögn átti atvikið sér stað þegar hann var kominn fram hjá Víðigerði og átti um þrjátíu kílómetra eftir inn á Blönduós. Halldór hefur þegar tilkynnt atvikið til lögregluembættisins á Norðurlandi vestra og segir að þegar hafi verið tekin af honum skýrsla. Þá hafi hann heyrt frá öðrum vegfarendum að ökumaðurinn hefði stundað glæfraakstur á kaflanum á undan. Pallbíllinn reyndi að taka fram úr röð bíla þar sem Halldór mætti honum í beygjunni. Ljóst er að erfitt er að koma löngum bíl ásamt stórum eftirvagni fyrir, aftur, á sinni réttu akrein auk þess sem þyngd farartækisins, auk eftirvagnsins, eykur verulega á hemlunarlengd bílsins. „Þetta er vítavert gáleysi,“ segir Halldór. Halldór ásamt reiðfáknum góða. Innsent Mótorhjólakappinn segist þó hafa verið hinn rólegasti í aðstæðunum og hafi í kjölfarið haldið för sinni áfram til Blönduóss. Þar hafi þau hjónin stoppað og rætt saman um það sem skeð hefði. Halldór segir að eiginkonu sinni hafa verið brugðið og þau hafi saman rætt möguleikann á því hvað ef bíllinn hefði farið framan á bíl hennar. Sögunni hefði ekki lokið þar þar sem þau hjónin leiddu lest bíla sem keyrðu á löglegum hraða. Það hefði því getað farið svo að fleiri bílar hefðu í kjölfarið farið aftan á bíl þeirra hjóna og úr orðið margra bíla alvarlegur árekstur. Það var ekki fyrr en daginn eftir sem síaðist að fullu inn hjá Halldóri hve alvarlegt atvikið hafði verið en hann skoðaði þá myndbandsupptöku af atvikinu, sýndi öðrum og ræddi. Ekki hefði mikið þurft til að öðruvísi hefði farið í þessum háskaleik. „Hefði ég verið á bíl og á hundrað, hundrað og tuttugu kílómetra hraða,“ segir Halldór og ljóst er hvað hann meinar. Halldór ítrekar að hann sé að koma með málið til fjölmiðla eftir að hafa hugsað sig um. Það sé nauðsynlegt að ökumenn landsins sameinist um að keyra varlegar og fara ekki út í slíkan glæfraskap líkt og sjá má á myndbandinu. Halldór er margreyndur mótorhjólakappi en segist ekki hafa lent í sambærilegu áður. Það sé þó gegnumgangandi vandamál á íslenskum vegum hve lítið tillit sé tekið til ökumanna bifhjóla.
Umferðaröryggi Bílar Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Innlent Fleiri fréttir Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Sjá meira