Jón Björn ráðinn sveitarstjóri Atli Ísleifsson skrifar 18. júní 2026 11:57 Jón Björn Hákonarson nýr sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar og Hermann Ingi oddviti sveitarstjórnar. Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar hefur ákveðið að ráða Jón Björn Hákonarson í stöðu sveitarstjóra.
Í tilkynningu frá Eyjafjarðarsveit segir að Jón Björn hafi áratuga reynslu af störfum á vettvangi sveitarstjórnarmála og víðtæka þekkingu á stjórnsýslu, stefnumótun og rekstri sveitarfélaga. Tekur hann við starfinu þann 1. ágúst næstkomandi. „Jón Björn hefur starfað að sveitarstjórnarmálum allt frá árinu 1994 og gegnt fjölmörgum trúnaðar- og forystuhlutverkum. Hann hefur lengi verið kjörinn fulltrúi í Fjarðabyggð og meðal annars verið forseti bæjarstjórnar á árunum 2010-2020 og aftur frá 2023. Þá gegndi hann starfi bæjarstjóra Fjarðabyggðar á árunum 2020-2023, þar sem hann bar ábyrgð á daglegum rekstri sveitarfélagsins og leiddi fjölbreytt og krefjandi verkefni í þágu íbúa. Auk starfa sinna innan sveitarfélagsins hefur Jón Björn gegnt fjölmörgum stjórnunar- og trúnaðarstörfum á landsvísu. Hann er í dag formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga og hefur setið í stjórn þess frá 2018, þar af sem varaformaður og síðar formaður. Þá hefur hann meðal annars verið stjórnarformaður Landsvirkjunar, tekið þátt í starfi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, setið í stjórnum húsnæðisfélaga og gegnt formennsku í fjarskiptaráði. Ferill Jóns Björns einkennist af breiðri reynslu sem spanna bæði stjórnmál, stjórnsýslu og framkvæmdastörf. Hann hefur einnig starfað sem sérfræðingur hjá almannavörnum þar sem hann kom að áætlanagerð og þróun mikilvægra upplýsingakerfa, auk þess að hafa áður starfað sem lögreglumaður, þjónustufulltrúi trygginga og í bankageiranum. Jón Björn leggur áherslu á mikilvægi góðra samskipta og trausts innan vinnustaða, sem og velferð starfsmanna og sterkrar liðsheildar. Hann telur að yfirvegun, samvinna og skýr stjórnsýsla séu lykilþættir í árangursríkri forystu og leggur áherslu á að vinna mál hratt og faglega án þess að missa sjónar á mannlega þættinum. Þá hefur hann lýst ríkum áhuga á áframhaldandi uppbyggingu Eyjafjarðarsveitar og sér fyrir sér fjölbreytt tækifæri til framtíðar, meðal annars á sviði skipulagsmála, landbúnaðar og eflingar lykilinnviða á borð við heilbrigðisþjónustu á svæðinu. Sveitarstjórn bindur miklar vonir við að reynsla Jóns Björns, víðtækt tengslanet og skýr sýn á þróun sveitarfélaga muni nýtast vel í áframhaldandi uppbyggingu Eyjafjarðarsveitar og í þjónustu við íbúa samfélagsins,“ segir í tilkynningunni.
Eyjafjarðarsveit Sveitarstjórnarmál Vistaskipti Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Fleiri fréttir Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Sjá meira