Af hverju ekki að segja Nei … af hverju ætti að segja kannski? Gunnar Ármannsson skrifar 19. júní 2026 13:31 Í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst nk. hefur ítrekað verið haldið fram að þeir sem hyggjast kjósa nei séu í raun að hafa af öðrum kjósendum einhvern rétt - réttinn til að „sjá hvað sé í boði“, réttinn til að „skoða samninginn“ eða jafnvel réttinn til að halda framtíðarmöguleikum opnum. Þetta er t.d. stefið í grein Thomasar Möller sem birtist á dv.is á þjóðhátíðardaginn 17. júní sl. Þessi málflutningur er ekki aðeins einföldun - hann er í grunninn öfugsnúinn. Það gleymist gjarnan í umræðunni að þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst þarf ekkert að fara fram. Hún er afleiðing af meðvitaðri ákvörðun ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórnin stóð frammi fyrir fleiri en einum valkosti: Hún gat farið í aðildarviðræður við Evrópusambandið án þess að bera spurninguna fyrst undir þjóðina. Hún gat klárað samningaviðræður og lagt síðan fullbúinn samning í þjóðaratkvæði. Hún gat þannig tryggt að kjósendur tækju afstöðu á grundvelli raunverulegs efnis, ekki óvissu. En þessi leið var ekki valin. Í staðinn var ákveðið að halda atkvæðagreiðslu um hvort yfirhöfuð ætti að hefja viðræður. Sú nálgun felur í sér að kjósendur eru beðnir um að taka afstöðu án þess að vita nákvæmlega hvað liggur fyrir. Kjósendur eru beðnir um að taka afstöðu til ferlis – ekki niðurstöðu. Þegar sagt er að nei-kjósendur séu að svipta aðra tækifærinu til að sjá samning, er verið að láta eins og þjóðaratkvæðagreiðslan sé náttúrulögmál sem enginn stjórnar. Svo er ekki. Það var pólitísk ákvörðun ríkisstjórnarinnar að leggja spurninguna um viðræður í þjóðaratkvæði áður en samningur liggur fyrir. Það hefði verið fullkomlega mögulegt fyrir stjórnvöld að tryggja þjóðinni að sjá samning - með því að gera samning. Ef einhver telur það vera mikilvægt að þjóðin fái að sjá hvaða kjör kunna að vera í boði, þá ætti gagnrýnin að beinast að þeim sem ákváðu að leggja ekki slíkan samning fyrir. Ekki þeim sem nýta sér þann lýðræðislega rétt að segja nei við því að hefja óljóst ferli. Það er ekki kjósandi sem ákveður að samningur liggi ekki fyrir. Það var ríkisstjórnin sem tók þá ákvörðun. Það að bjóða upp á þjóðaratkvæðagreiðslu felur í sér eitt grundvallaratriði. Að niðurstaða kosninga er óviss. Og hún getur orðið sú að nei verði ofan á. Ef ekki væri raunverulega gert ráð fyrir þeirri niðurstöðu, væri kosningin merkingarlaus. Að halda því svo fram að ein af tveimur lögmætum niðurstöðum – nei - sé einhvers konar „réttindasvipting“ er því í raun að draga úr gildi kosninganna sjálfra. Að kjósa nei í þessari atkvæðagreiðslu er ekki að svipta aðra möguleikum. Það er að taka afstöðu til þess hvort rétt sé að fara þessa leið, á þessu stigi og með þessum hætti. Það er afstaða til tímasetningar, verklags og pólitísks umboðs. Ekkert meira og ekkert minna. Ef nei verður ofan á 29. ágúst nk., þá er málinu einfaldlega lokið - að sinni. Það er eðli lýðræðisins. Og það er mikilvægt að hafa í huga að það voru Inga, Þorgerður og Kristrún sem ákváðu að haga ferlinu með þessum hætti. Því er ekki sanngjarnt að gera kjósendum upp ábyrgð á afleiðingum ákvörðunar þeirra. Lýðræðið byggir á því að kjósendur fái að velja - ekki að þeim sé sagt að ein niðurstaða sé „opnari“, „skynsamlegri“ eða siðferðilega réttari en önnur. Hvort sem menn hallast að já eða nei, þá ætti umræðan að endurspegla þá einföldu staðreynd að kjósendur sem segja nei eru ekki að svipta neinn réttindum. Þeir eru að nýta sinn eigin. Höfundur er lögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Gunnar Ármannsson Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun