Segir upphaf hvalvertíðar vera gleðitíðindi: „Peningarnir detta ekki af himnum ofan“ Freyja Þórisdóttir skrifar 22. júní 2026 20:53 Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, lýsti áhrifum hvalvertíðar á nærsamfélagið í kvöldfréttum Sýnar. Sigurjón ólason Fyrstu langreyðarnar, sem veiðst hafa við Íslandsstrendur í þrjú ár, eru væntanlegar á land í Hvalfirði í nótt. Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir upphaf hvalvertíðar gleðitíðindi, venjulegt verkafólk geti fengið allt að tvær milljónir króna í laun á mánuði. Þá segir hann að það yrði illa farið fyrir Íslendingum ef „öfgaskoðanir öfgafólks“ færu að hafa áhrif á ákvarðanatökur.
Útlit er fyrir að langreyðar verði dregnar á land í nótt og að skurður hefjist snemma í fyrramálið, þriðjudaginn 23. júní, en Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir þetta upphaf vertíðarinnar vera „glæsileg tíðindi“. Vilhjálmur segir hana jafnframt bjóða upp á mikla tekjumöguleika og að venjulegt verkafólk geti þénað allt að tvær milljónir á mánuði. Vertíðin skapi einnig tekjur fyrir Akraneskaupstað, Hvalfjarðarsveit og nærsamfélögin „þar sem útsvarstekjur munu nema tugum milljóna og ég tala nú ekki um ríkissjóð líka,“ segir hann. Stór hluti útflutningstekna, sem hann segir nema um tíu milljörðum frá árinu 2011, verði eftir í nærsamfélaginu og að þau sem búi á landsbyggðinni geri sér grein fyrir því að „þú rekir ekki samfélag án þess að vera með öflugar útflutningsgreinar innan þinna vébanda,“ segir hann og ítrekar að „peningarnir detti ekki af himnum ofan ef svo má að orði komast“. Þá sé illa komið fyrir Íslendingum Undanfarið hafa mótmæli gegn hvalveiðum ratað í fréttir og nú nýlegast þegar mótmælandinn Hólmsteinn Harðarson kom sér fyrir í tunnu um borð í hvalveiðiskipinu Hval 9 og stuttu seinna var skipinu stefnt á haf út. Vilhjálmur virðist hafa litla samúð með sjónarmiðum mótmælenda hvalveiða. „Að sjálfsögðu eigum við að nýta okkar sjávarauðlind, að höfðu samráði við okkar vísindamenn við Hafrannsóknarstofnun, og ef við látum einhverjar öfgaskoðanir öfgafólks hafa þau áhrif að við séum ekki að nýta okkar náttúruauðlindir, sjávarauðlindir, þá er illa komið fyrir okkur Íslendingum,“ segir hann.
Hvalfjarðarsveit Hvalir Akranes Hvalveiðar Sjávarútvegur Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira