Rabarbari hafinn til vegs og virðingar á Blönduósi Kristján Már Unnarsson skrifar 23. júní 2026 09:19 Edda Brynleifsdóttir sýnir fréttamanni beð með mörgum yrkjum rabarbara. Egill Aðalsteinsson Húnvetningar efna til rabarbarahátíðar á Blönduósi næstkomandi laugardag, 27. júní. Aðstandendur segjast vilja upphefja rabarbarann og kynna um leið allskonar rétti sem vinna má úr honum, eins og bjór, saft og freyðivín.
Húnvetningar eru að stimpla Blönduós inn sem rabarbarabæ Íslands með árlegri hátíð sem haldin var í fyrsta sinn fyrir þremur árum, en fjallað var um hátíðina í kvöldfréttum Sýnar. Edda Brynleifsdóttir segir nokkrar brottfluttar konur hafa átt frumkvæðið, sem hún lýsir sem kjarnakvendum. Í gamla bæjarhlutanum er búið að skreyta veggi með rabarbaramyndum en þar vildu konurnar skapa fjörmikla fjölskylduhátíð. Búið er að mála myndir af rabarbara á bárujárnsvegg í gamla bænum á Blönduósi.Rabarbarafélag Íslands „Bara að upphefja plöntuna. Vegna þess að þetta er náttúrulega bara snilldarjurt á allan hátt. Hún hefur bæði lækningamátt og svo er hægt að nota hana í endalausan mat og rétti,“ segir Edda Brynleifsdóttir, en hún er ein af konunum sem standa á bak við Rabarbarafélag Íslands. Í rabarbarabeði við Koppagötu má sjá dæmi um nokkur yrki. Edda segir að bara á Íslandi séu um tuttugu yrki rabarbara. Á safni í Englandi megi finna um fjögurhundruð yrki. Fræðsluganga um rabarbara frá fyrri hátíð.Rabarbarafélag Íslands En hafa Blönduós og Húnvetningar einhverja sérstöðu hvað varðar rabarbarann? „Ég held þeir hafi ekki meiri sérstöðu frekar en aðrir. Hérna er náttúrulega gamli bæjarhlutinn og hann var allur morandi í rabarbara. Vegna þess að þetta var náttúrulega bara hálfgerð kreppujurt á sínum tíma og það þótti gott að hafa rabarbara í görðum. Vegna þess að kannski að vori til þegar var lítið orðið um mat þá var alltaf hægt að nýta rabarbarann í alls konar.“ Við gömlu kirkjuna er rabarbarabeð sem er friðað, svo hjartfólginn er hann íbúunum. „Af því hann er kominn yfir hundrað ára aldur. Og þá má nýta hann, má borða úr honum, en það má ekki hrófla við honum eða skerða hann á nokkurn hátt.“ Við gömlum kirkjuna á Blönduósi er friðað rabarbarabeð.Egill Aðalsteinsson Hátíðin hefst á laugardagsmorgni. Efnt verður til rabarbarahlaups fyrir börnin, haldnar listasmiðjur, fræðsluerindi flutt og auðvitað boðið upp á rabarbara. „Til dæmis núna á hátíðinni þá eru alltaf gestakokkar, sem að koma og bara töfra fram ótrúlegar máltíðir úr rabarbara. Þú hefðir ekki trúað því. Svo er rabarbarabjór og rabarbarafreyðivín og saft og alls konar,“ segir Edda hér í sjónvarpsfrétt Sýnar:
Húnabyggð Garðyrkja Matur Matvælaframleiðsla Tengdar fréttir Mikill áhugi á ræktun rabarbara með tilkomu Rabarbarafélags Íslands Rabarbari og allt það helsta í kringum þá plöntu verður í aðalhlutverk á Árbæjarsafni í dag því þar fer fram fræðsla og verklega kennsla í flestu því sem kemur að því að búa til rabarbaragarð, hugsa um garðinn, taka upp rabarbara og að útbúa rabarbarasultu. 6. júlí 2025 12:21 Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira
Mikill áhugi á ræktun rabarbara með tilkomu Rabarbarafélags Íslands Rabarbari og allt það helsta í kringum þá plöntu verður í aðalhlutverk á Árbæjarsafni í dag því þar fer fram fræðsla og verklega kennsla í flestu því sem kemur að því að búa til rabarbaragarð, hugsa um garðinn, taka upp rabarbara og að útbúa rabarbarasultu. 6. júlí 2025 12:21