Hiti á fyrsta fundi: „Það þarf ekki minni menntun til að kenna minna fólki“ Lovísa Arnardóttir skrifar 24. júní 2026 20:41 Sigrún Ásta Einarsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er nýr formaður nýs leikskóla- og daggæsluráðs. Aðsend og Vísir/Vilhelm Áheyrnarfulltrúar starfsmanna og stjórnenda í leikskólum og foreldra leikskólabarna gagnrýna þá breytingu að meirihlutinn hafi aðskilið grunn- og leikskólastigið í tveimur nýjum ráðum. Þá gagnrýna fulltrúar starfsmanna og stjórnenda það harðlega að meirihlutinn ætli í samtal við ráðherra um styttingu leikskólakennaranámsins.
Leikskólastigið í Reykjavík tilheyrir nú nýju ráði, leikskóla- og daggæsluráði, en grunnskólinn tilheyrir enn skóla- og frístundaráði. Fyrsti fundur nýs leikskóla- og daggæsluráðs fór fram í fyrradag. Sigrún Ásta Einarsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er formaður ráðsins. Í bókun fulltrúanna, Guðrúnar Gunnarsdóttur fulltrúa leikskólastjóra og Lindu Óskar Sigurðardóttur fulltrúa starfsfólks í leikskólum, er bent á að leikskólinn sé samkvæmt lögum fyrsta skólastigið og að það veki því furðu að leikskólastiginu sé blandað við daggæsluráð. „Bent er á að eftir breytinguna er skóla- og frístundaráð rangnefni. Skóli er samheiti yfir öll skólastig en ekki heiti á grunnskólanum. Réttnefni á skóla- og frístundaráði væri þá grunnskóla- og frístundaráð eða grunnskóla-, tónlistarskóla- og frístundaráð ef tónlistarskólinn er enn partur af ráðinu,“ segir enn fremur í bókun þeirra. Ítreka mikilvægi góðra samskipta beggja skólastiga Anna Laufey Stefánsdóttir, áheyrnarfulltrúi foreldra barna í leikskólum, gagnrýndi einnig breytinguna á fundi. „Samskipti og samræmi á milli skólastiga skipta mjög miklu máli, enda er leikskólastigið fyrsta skólastigið. Foreldrar leikskólabarna eru annaðhvort með börn í grunnskólum eða væntanleg börn í grunnskólum. Það er mikilvægt að samskipti og áherslur séu samstíga á milli stiga,“ segir í bókun. Þessu svöruðu fulltrúar meirihlutans, þær Sigrún Ásta og Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, og bentu á að meirihlutinn hefði ákveðið að stofna sérstakt leikskóla- og daggæsluráð til þess að draga fram mikilvægi málaflokkanna. „Skóla- og frístundasvið hefur umsjón með bæði leikskóla- og daggæsluráði og skóla- og frístundaráði sem er lykilatriði í því að málefni beggja skólastiga séu rædd í samfellu og gott samtal sé á milli ráðanna,“ segir í bókun meirihlutans um málið. Mikill áhugi sé á leikskólakennaranámi Í umræðu á fyrsta fundi ráðsins fór svo fram kynning á verkefnalista meirihlutans en á honum er til dæmis að hefja viðræður við vinnustaði um stofnun leikskóla eða daggæslu, stofnun nýs daggæslustigs, systkinaforgang, samtal við stjórnvöld um lengingu fæðingarorlofs og að hefja samtal við barna- og menntamálaráðherra um áhrif afnáms eins leyfisbréfs og styttingar leikskólakennaranáms á mönnun leikskóla og ræða mótvægisaðgerðir. Það síðasta gagnrýna áheyrnarfulltrúar starfsmanna og stjórnenda í leikskólum harðlega í bókun á fundinum. Breytingin var töluvert rædd í aðdraganda kosninga og var þessi tillaga gagnrýnd af Félagi leikskólakennara. „Búið er að sýna fram á með haldbærum gögnum að eitt leyfisbréf hefur gert það að verkum að flæðið á milli skólastiga hefur nánast verið jafnt undanfarin tvö ár. Það var svo sannarlega ekki raunin fyrir leyfisbréfabreytinguna og hallaði þar verulega á leikskólastigið,“ segir í bókun þeirra. Þar er bent á að í fyrra hafi 128 útskrifast úr meistaranámi sem veiti leyfisbréf til kennslu með áherslu á menntunarfræði leikskóla árið 2025 og að það séu, til dæmis, fleiri en útskrifuðust með meistarapróf í lögfræði það sama ár. „Meistaranám í menntunarfræði leikskóla er því mjög vinsælt og einstaklingar setja ekki fyrir sig að mennta sig í leikskólafræðum. Það lýsir miklum fordómum gagnvart menntunarfræði ungra barna að láta sér detta það í hug að gera minni kröfur til þeirra sem kenna á leikskólastiginu. Það þarf ekki minni menntun til að kenna minna fólki,“ segir í bókuninni og að allar forsendur séu til staðar til að fjölga kennurum enn frekar. „Tækifærin eru svo sannarlega til staðar og þau eigum við að nýta. Þannig aukum við gæði náms í leikskólum börnum til heilla. Leikskólinn er fyrir börn og þau eiga það besta skilið.“ Á fundi tók Silja Sóley Birgisdóttir, skóla- og frístundaráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands, leggur, tók undir þessa gagnrýni starfsfólks. „Fulltrúi Sósíalista bendir jafnframt á að verkefni meirihlutans snúa helst að foreldrum leikskólabarna og aukinni áherslu á einkavæðingu leikskólakerfisins. Afar fáar aðgerðir snúast um bættar starfsaðstæður starfsfólks eða koma inn á velferð og farsæld ungra barna,“ sagði Silja Sóley. Vilja að Reykjavík verði leiðandi í leikskólastarfi Þessu svöruðu fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar, þær Sigrún Ásta og Björg, og sögðu að þau ætluðu að leggja áherslu á að ná árangri í skólamálum. Þar þurfi að huga allt í senn að aðstæðum og ánægju kennara og starfsfólks, gæðum leikskólastarfs fyrir börnin og hvernig eigi að þjónusta fjölskyldur í borginni sem best. „Það er vilji þessa meirihluta að gera allt sem hægt er til þess að Reykjavík verði leiðandi í leikskólastarfi og að leikskólakennarar sækist eftir því að vinna í sveitarfélaginu.“
Leikskólar Skóla- og menntamál Borgarstjórn Grunnskólar Reykjavík Börn og uppeldi Sjálfstæðisflokkurinn Viðreisn Sósíalistaflokkurinn Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Sjá meira