Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 25. júní 2026 12:30 Halldór Geirsson segir að stórir skjálftar komi á 100 til 150 ára fresti í Venesúela. Stöð 2/ Þorsteinn Magnússon Halldór Geirsson jarðeðlisfræðingur hjá Háskóla Íslands þekkir vel til skjálftasvæðana í Venesúela þar sem jörð skalf í gærkvöldi, en hann aðstoðaði kollega sinn við ritun greinar um misgengin í norðurhluta Venesúela árið 2021.
Í greininni voru yfirvöld hvött til að gera ráðstafanir til að bregðast við stórum skjálfta á svæðinu sem reið svo yfir í gærkvöldi. Óttast er að þúsundir gætu hafa látið lífið en staðfest tala látinna eins og er stendur í 164. „Norðurhluti Venesúela er á flekaskilum, á milli tveggja tektónskra fleka. Þeir eru Suður-Ameríkuflekinn og karabíski flekinn,“ segir Halldór. „Og þarna er hreyfing sem nemur einhverjum rétt rúmum tveimur sentimetrum á ári.“ Halldór segir að það sé svipuð gliðnun og hér á Íslandi, munurinn liggi í því að í Venesúela sé um sniðgengishreyfingu að ræða. „Og þegar það er í gangi þá safnast upp spenna sem losnar svo í þessum jarðskjálftum.“ Skjálftarnir í gærkvöldi voru þeir öflugstu í rúma öld: „Það var stór skjálfti þarna aðeins austa árið 1900 sem var svipaður að stærð og þessi eða aðeins stærri. Svo voru þarna stórir skjáftar 1641 og 1812 þar sem urðu miklar skemmdir á borginni, þannig að það eru ákveðin flekaskil þarna þar sem skjálftar endurtaka sig á svona 100 til 150 ára fresti, eitthvað svoleiðist. Halldór aðstoðaði kollega sinn fyrir nokkrum árum við rannsókn á stöðu mála í Venesúela og í vísindagrein sem gefin var út í kjölfarið árið 2021 var varað við því að von væri á stórum skjálftum á svæðinu von bráðar. „Eitt af því sem kom út úr þeirri rannsókn var að þetta San Sebastian misgengi, sem er sprungan sem skjálfarnir nú urðu á, var það svæði sem var að safna hvað hraðast upp spennu. Ég kíkti einmitt á þessa grein aftur í morgun og í lokasetninguni í niðurstöðukafla hennar eru yfirvöld í Venesúela hvött til þess að undirbúa sig undir að stór skjálfti ríði yfir á þessu svæði á næstu árum. Það hefur nú gengið eftir,“ segir Halldór Geirsson jarðeðlisfræðingur hjá Háskóla Íslands.
Venesúela Eldgos og jarðhræringar Náttúruhamfarir Jarðskjálfti í Venesúela 2026 Tengdar fréttir Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Enn hafa engar beiðnir um aðstoð borist borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins frá Íslendingum á skjálftasvæðunum í Venesúela. 25. júní 2026 10:35 Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Óttast er að mörg þúsund manns hafi týnt lífi í tveimur öflugum jarðskjálftum sem skóku Venesúela í gærkvöldi. Fyrri skjálftinn mældist 7,2 og sá seinni 7,5 en upptök skjálftans voru vestur af höfuðborginni Caracas. 25. júní 2026 06:18 Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Gríðarstór skjálfti skók Venesúela í dag og olli því að hús hrundu í höfuðborginni Karakas. Risaölduviðvörun hefur verið gefin út í Venesúela, Arúba og Bonaire. Hann fannst einnig í Kólumbíu. 24. júní 2026 23:56 Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira
Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Enn hafa engar beiðnir um aðstoð borist borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins frá Íslendingum á skjálftasvæðunum í Venesúela. 25. júní 2026 10:35
Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Óttast er að mörg þúsund manns hafi týnt lífi í tveimur öflugum jarðskjálftum sem skóku Venesúela í gærkvöldi. Fyrri skjálftinn mældist 7,2 og sá seinni 7,5 en upptök skjálftans voru vestur af höfuðborginni Caracas. 25. júní 2026 06:18
Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Gríðarstór skjálfti skók Venesúela í dag og olli því að hús hrundu í höfuðborginni Karakas. Risaölduviðvörun hefur verið gefin út í Venesúela, Arúba og Bonaire. Hann fannst einnig í Kólumbíu. 24. júní 2026 23:56