Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Agnar Már Másson skrifar 25. júní 2026 20:21 Börn 11 ára og yngri fá eftir sem áður frítt í Strætó. Börn á grunnskólaaldri í Reykjavík fá ekki lengur öll frítt í Strætó eftir að ný borgarstjórn afturkallaði samþykkt síðasta borgarstjórnarmeirihluta þess efnis, rétt tæpum tveimur mánuðum eftir að breytingarnar tóku gildi. Ný borgarstjórnin telur breytingarnar of kostnaðarsamar. Börn 11 ára og yngri fá eftir sem áður frítt í Strætó.
Á borgarráðsfundi í dag var samþykkt að afturkalla afgreiðslu síðustu borgarstjórnar um að fella niður gjaldtöku í strætisvögnum fyrir reykvísk börn á grunnskólaaldri. Síðasti borgarstjórnarmeirihluti hafði samþykkt í byrjun febrúar tillögu þess efnis að gera Strætó gjaldfrjálsan fyrir börn í Reykjavík 15 ára og yngri. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri.Vísir/Lýður Valberg Strætó: Kostar 167 milljónir króna á ári Strætó bs. hafði metið kostnað við slíkar breytingar í kringum 167 milljónir króna á ári fyrir Reykjavíkurborg, sem á um 60 prósent í byggðasamlaginu. Þegar tillagan var samþykkt á sínum tíma sagði Heiða Björg Hilmisdóttir, þáverandi borgarstjóri, að fjárhagslegt svigrúm væri til staðar til þess að ganga í slíkar breytingar. En nýr meirihluti segir tillöguna ekki hafa verið fjármagnaða og að hún feli í sér verulegan kostnað. Breytingarnar tóku gildi 1. maí, fyrst með skammtímalausn þar sem hægt var að sækja um strætókort í gegnum grunnskóla barnanna, en svo var hægt að sækja um kort inni á vef Reykjavíkurborgar en unnið hefur verið að varanlegri innleiðingu. „Vantaði fjármagnið“ „Við nánari yfirferð hefur komið í ljós að bæði skammtímalausnin og fyrirhuguð varanleg innleiðing gjaldfrjálsra strætóferða fyrir grunnskólabörn fela í sér verulegan og viðvarandi kostnað sem var aldrei gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun borgarinnar,“ segir í bókun meirihlutaflokkanna; Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Viðreisnar. „Því er nauðsynlegt að afturkalla fyrri samþykktir enda vantaði fjármagnið.“ Meirihlutinn telur að fjármunum borgarinnar verði að ráðstafa þar sem þeir skili sem mestri „samfélagslegri verðmætasköpun“ og tryggi lögbundna og mikilvæga grunnþjónustu. „Meirihlutinn mun áfram vinna að eflingu almenningssamgangna og bættu aðgengi fyrir íbúa, en slík uppbygging verður að byggjast á traustum undirbúningi, ábyrgri forgangsröðun og sjálfbærum rekstri svo unnt sé að standa við þær ákvarðanir sem teknar eru.“ Framsókn sem vildi að öll börn í borginni fengju frítt í Strætó Bent er á það í bókun fulltrúa Vinstrisins að þegar tillagan var samþykkt á sínum tíma hafi fulltrúi Framsóknar, sem þá var í minnihluta, lagt til að gjaldfrelsið næði frekar til allra barna, ekki eingöngu barna á grunnskólaaldri. „Það vekur því athygli og furðu að Framsókn skuli nú breyta um stefnu í málinu,“ segir í bókun fulltrúa Vinstrisins.
Strætó Borgarstjórn Reykjavík Börn og uppeldi Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira