Sport

Af­salar sér ó­vænt öllum heims­meistara­titlum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Oleksandr Usyk stillir sér upp fyrir myndatöku með meistarabeltunum og liðsmönnum sínum eftir sigur á Daniel Dubois í kjölfar bardaga þeirra um heimsmeistaratitla IBF, IBO, WBC og WBO í þungavigt á „Undisputed“ bardagakvöldinu á Wembley-leikvanginum þann 19. júlí 2025 í London.
Oleksandr Usyk stillir sér upp fyrir myndatöku með meistarabeltunum og liðsmönnum sínum eftir sigur á Daniel Dubois í kjölfar bardaga þeirra um heimsmeistaratitla IBF, IBO, WBC og WBO í þungavigt á „Undisputed“ bardagakvöldinu á Wembley-leikvanginum þann 19. júlí 2025 í London. Getty/Richard Pelham

Úkraínska hnefaleikastjarnan Oleksandr Usyk hefur ákveðið að afsala sér öllum heimsmeistaratitlunum sem hann hefur tryggt sér hjá nokkrum mismunandi samböndum. Á sama tíma hafnar hann því samt að ferlinum sé alfarið lokið.

Usyk tilkynnti þetta í myndbandi sem birt var á samfélagsmiðlum hans á föstudag.

Úkraínumaðurinn er heimsmeistari í þungavigt hjá samböndunum WBA, WBC og IBF eftir að hafa drottnað yfir íþróttinni um langa hríð. Hann er einnig handhafi hins virta Ring Magazine-titils.

Usyk, sem síðast barðist þegar hann vann umdeildan sigur á sparkboxgoðsögninni Rico Verhoeven, er jafnframt alveg skýr á því að enn sé eftir „einn síðasti dans“ áður en hann leggur hanskana á hilluna.

Allt bendir því til þess að einn síðasti bardagi verði háður áður en Usyk hættir.

„Þetta er góður dagur til að segja að ég muni afsala mér öllum beltunum sem ég hef í augnablikinu. Ég vil gera þau aðgengileg svo að þeir næstu í röðinni geti barist um þau,“ sagði Úkraínumaðurinn í óvæntu myndbandi föstudagsins.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×