Rétt rúmur helmingur myndi segja já í ágúst Lovísa Arnardóttir skrifar 27. júní 2026 11:37 Atkvæðagreiðslan fer fram þann 29. ágúst. Vísir/Vilhelm Rétt rúmlega helmingur landsmanna, 52 prósent, telur líklegast að ef atkvæðagreiðslan færi fram núna myndi hann greiða atkvæði með því að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný en rétt tæplega helmingur, 48 prósent, telur líklegast að hann greiddi atkvæði gegn því.
Afar mjótt er því á munum nú þegar tveir mánuðir eru í atkvæðagreiðsluna. Þetta sýnir nýr þjóðarpúls Gallup. Þar kemur einnig fram að fólk undir þrítugu og fólk milli fertugs og fimmtugs er líklegra en fólk á öðrum aldri til að greiða atkvæði með því að Ísland hefji aðildarviðræður á ný. Hæst er hlutfallið meðal þeirra sem eru 18 til 29 ára en 63 prósent þeirra myndu segja já í dag en 58 prósent þeirra sem eru á aldrinum 30 til 39 ára myndu segja nei. Höfuðborgarbúar jákvæðari en landsbyggð Íbúar höfuðborgarsvæðisins eru sömuleiðis líklegri til þess en íbúar landsbyggðarinnar en 56 prósent íbúa á höfuðborgarsvæðinu myndu segja já og 44 prósent fólks á landsbyggðinni. 68 prósent fólks með háskólamenntun myndu segja já en 45 prósent þeirra sem eru með annaðhvort grunnskóla- eða framhaldsskólapróf. Munur er á því hvort fólk segi já eða nei eftir því hvað það er gamalt, hvar það býr og hvað það kýs. Gallup Samkvæmt niðurstöðum er gríðarlegur munur á viðhorfi fólks eftir því hvaða flokk það kysi ef kosið yrði til Alþingis í dag. Þau sem kysu Viðreisn eru líklegust til að greiða atkvæði með því að aðildarviðræður hefjist að nýju en þau sem kysu Miðflokkinn ólíklegust. Þau sem styðja ríkisstjórnina eru líklegri en þau sem styðja hana ekki til að greiða atkvæði með því að taka upp viðræður á ný en eins og sést í greiningunni eru þau sem kysu stjórnarflokkana, sérstaklega Viðreisn eða Samfylkingu, einna líklegust til að greiða atkvæði með því ásamt þeim sem kysu Vinstri græn. Spurt var: Ef þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram í dag þar sem spurt væri: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“, hvernig telur þú líklegast að þú myndir greiða atkvæði? Könnunin var framkvæmd í netkönnun dagana 12.-24. júní 2026. Heildarúrtaksstærð var 1.993 og þátttökuhlutfall var 41,1%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Skoðanakannanir Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Gjörbreytt staða ef Íslendingar ganga inn í ESB Utanríkisráðherra Noregs segir gjörbreytta mynd blasa við ákveði Íslendingar að ganga inn í Evrópusambandið. EES-samningurinn myndi þó halda en staða Norðmanna veikjast. 23. júní 2026 14:16 „Við erum eitt þeirra landa sem skilja fiskveiðarnar einna best“ Utanríkisráðherra Spánar segir Spánverja eiga Evrópusambandinu mikið að þakka og að uppbygging landsins frá því að það gekk í sambandið fyrir fjörtíu árum hafi að miklu leyti verið fjármögnuð með sjóðum ESB. Hann ræddi við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur á opnum fundi í Norræna húsinu í dag. 23. júní 2026 20:02 Þingið komið í sumarfrí Þingi hefur verið frestað og ganga alþingismenn nú út í sumarfrí. Lengsta umræðan á yfirstöðnu þingi fjallaði um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þing kemur saman á ný 8. september. 19. júní 2026 17:19 „Í góðu lagi að gefa henni orðið núna“ Forsætisráðherra telur ekki þörf á þingstubbi í ágúst til þess að ræða fjármálaáætlun og fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu, líkt og Sjálfstæðisflokkurinn fór fram á. Þjóðin eigi nú orðið. Stefnt er að því að ljúka þingstörfum í seinni hluta vikunnar. 15. júní 2026 12:25 Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Fleiri fréttir Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Sjá meira
Gjörbreytt staða ef Íslendingar ganga inn í ESB Utanríkisráðherra Noregs segir gjörbreytta mynd blasa við ákveði Íslendingar að ganga inn í Evrópusambandið. EES-samningurinn myndi þó halda en staða Norðmanna veikjast. 23. júní 2026 14:16
„Við erum eitt þeirra landa sem skilja fiskveiðarnar einna best“ Utanríkisráðherra Spánar segir Spánverja eiga Evrópusambandinu mikið að þakka og að uppbygging landsins frá því að það gekk í sambandið fyrir fjörtíu árum hafi að miklu leyti verið fjármögnuð með sjóðum ESB. Hann ræddi við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur á opnum fundi í Norræna húsinu í dag. 23. júní 2026 20:02
Þingið komið í sumarfrí Þingi hefur verið frestað og ganga alþingismenn nú út í sumarfrí. Lengsta umræðan á yfirstöðnu þingi fjallaði um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þing kemur saman á ný 8. september. 19. júní 2026 17:19
„Í góðu lagi að gefa henni orðið núna“ Forsætisráðherra telur ekki þörf á þingstubbi í ágúst til þess að ræða fjármálaáætlun og fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu, líkt og Sjálfstæðisflokkurinn fór fram á. Þjóðin eigi nú orðið. Stefnt er að því að ljúka þingstörfum í seinni hluta vikunnar. 15. júní 2026 12:25