Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum Lovísa Arnardóttir skrifar 27. júní 2026 13:44 Fjölskyldan saman frá vinstri: Sebastian, Bragi, Elinóra og Rós. Aðsend Nýtt hitamet hefur verið slegið í Ødum á Austur-Jótlandi þar sem hiti mældist 37 gráður í dag. Elinóra Guðmundsdóttir býr í Kaupmannahöfn þar sem hiti hefur einnig verið verulegur. Hún segir nánast óbærilegt úti og hún hafi þurft að halda börnunum inni. „
Ég held þetta hafi í dag verið um 35 gráður í skugga,“ segir hún um hitann í dag og að frá því að fjölskyldan flutti til Danmerkur fyrir átta árum muni hún aðeins eftir einu skipti þar sem hiti fór upp í 32 gráður í skugga. Í frétt á vef DR kemur fram að hitamet hafi verið slegið bæði í Ødum á Austur-Jótlandi og á H.C. Andersen flugvellinum norður af Óðinsvéum þar sem hitamælirinn sýndi 37,0 gráður. Tilkynnt var fyrr í dag að hitamet hefði verið slegið þegar hitinn mældist 36,8 gráður á þessum stöðum og búast má því að hiti gæti orðið enn meiri en 37. Fyrra met var frá 10. ágúst 1975 í Holstebro og var 36,4 gráður. „Þetta er líka svo erfitt þegar hitinn fer ekki niður fyrir tuttugu gráður á nóttunni,“ segir hún og að síðasta nótt hafi verið ansi erfið. „Ef hitinn fer ekki niður fyrir tuttugu gráður að nóttu er maður alveg búinn á því.“ Fjölskyldan er með gesti í heimsókn frá Íslandi og hafði systir hennar planað barnaafmæli dag. „Það eru mörg börn hérna í heimsókn hjá okkur og það er auðvitað ekki loftkæling neins staðar,“ segir hún frekar en á Íslandi. Hún segir börnin ansi vansæl. „Þau tala bara um að vilja fara heim til Íslands,“ segir hún. „Við erum að mestu inni, allavega yfir heitasta tímann, börnin að bráðna í sófanum, þótt það sé geggjuð sól úti. Þetta er eitthvað svo öfugsnúið við það sem maður lærði sem barn um að vera úti að leika þegar veðrið er gott.“ Kælar fullir og nóg af klaka Hún segir stöðuna þó ekki þannig í Danmörku að búið sé að setja áfengisbann eins og hafi verið gert víða í Frakklandi. Þar hefur geisað hitabylgja alla síðustu viku og tugir hafa látist, þar með talið börn. Hún segir stöðuna nokkuð góða í Danmörku og sem dæmi hafi hún bæði farið út í búð í gærkvöldi og í dag og kælar hafi verið fullir. „Það tæmast oft búðirnar sem eru nálægt ströndunum og bryggjunni í svona góðu veðri en ég fór út í búð í gærkvöldi og klakakælirinn var fullur, það var nóg af drykkjum, fullt af kældum drykkjum. Verslanir virðast hafa verið vel undirbúnar en það hefur eflaust áhrif að þetta hefur ekki verið svona í tíu daga,“ segir hún og vísar þannig til annarra landa í Evrópu. Hún segir systur sína hafa ákveðið að halda plana með barnaafmæli í dag en þau muni sjá hvernig það hafi. „Við vorum ekki með nein önnur plön í dag en ég veit að það ætluðu margir á ströndina til að geta kælt sig í sjónum.“ Hún segir þau þó hafa þurft að fara út í dag og hafi ferðast í strætó. „Það var engin loftkæling og það var alveg ógeðslega heitt. Þá töluðu krakkarnir mikið um það að þau væru að fara aftur til Íslands í næstu viku,“ segir hún. Viðvaranir gefnar út Hún segir Dani og íbúa í Danmörku hafa verið varaða við. Það hafi verið gefin út viðvörun auk þess sem ítarlega var fjallað um hitann í fréttunum. „Við reynum að taka því rólega,“ segir hún en svipuðum hita er spáð á morgun en þó einnig þrumum og eldingum. „Þetta er sem betur fer um helgar en ekki á virkum dögum. Það eru engir vinnustaðir með loftkælingu,“ segir hún en sjálf starfar Elinóra í íslenska sendiráðinu í Danmörku.
Danmörk Íslendingar erlendis Umhverfismál Loftslagsmál Veður Hitabylgja í Evrópu í júní 2026 Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira