Sport

Jöfnuðu í uppbótartíma

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þróttarar jöfnuðu metin í uppbótartíma.
Þróttarar jöfnuðu metin í uppbótartíma.

Vestri tapaði niður unnum leik undir lok leiksins á Avis-vellinum gegn Þrótti í Lengjudeildinni í dag.

Örn Bragi Hinriksson jafnaði metin 1-1 á 91. mínútu eftir mikla dramatík.

Fyrsta mark leiksins gerði Breki Þór Hermannsson á 41. mínútu og undir lokin leit allt út fyrir að það væri að duga Vestramönnum til risasigurs.

En niðurstaðan 1-1 jafntefli. Þróttur enn í efsta sætinu með 23 stig en Vestri í því þriðja með 19 stig. Upplýsingar um markaskorara fengnar á Fótbolti.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×