„Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Andri Broddason skrifar 1. júlí 2026 16:15 Hilmar Smári er sáttur með ákvörðun sína að framlengja við Stjörnuna og er spenntur fyrir komandi leikjum með landsliðinu, Vísir/Ernir Mörg lið höfðu samband við Hilmar Smára Henningsson þar sem hann var samningslaus hjá Stjörnunni. Hann skoðaði aðra möguleika en endaði á að framlengja samning sinn við Stjörnuna.
Miklar sviptingar urðu hjá körfuboltadeild Stjörnunnar þegar þjálfari liðsins, Baldur Þór Ragnarsson, yfirgaf félagið og gekk til liðs við Álftanes. Þá vöknuðu miklar spurningar um hvaða leikmenn myndu halda áfram hjá Stjörnunni og hver yrði nýr þjálfari liðsins. „Eins og margir sáu þá gerðist mikið í Garðabænum eftir síðasta tímabil. Ég tók skref til baka og reyndi að núllstilla mig, endurmat stöðu mína alveg upp á nýtt, en staðan var þannig að Stjarnan var mest spennandi kosturinn fyrir mig. Menn sýndu fram á að það sem þeir hafa verið að gera hérna mun halda áfram þrátt fyrir breytingar. Ég er bara stoltur að vera partur af því.“ Hilmar Smári var orðinn samningslaus hjá Stjörnunni og skiljanlega höfðu mörg lið áhuga á að fá hann til sín. „Ég talaði við fullt af mönnum og fullt af liðum en mér leist best á Stjörnuna og er glaður að vera hérna áfram.“ Ánægður með báða þjálfara „Baldur er að mínu mati besti þjálfari landsins og ég stend alveg við það. Hann er búinn að vera frábær þjálfari fyrir okkur í tvö ár og auðvitað vill maður spila fyrir hann. En maður þurfti að vega og meta þá kosti og galla sem voru fyrir framan mann á borðinu. Á sama tíma finnst mér mjög gaman að spila með Ægi, Bjarna, Orra og öllum sem eru hérna í Stjörnunni, og ég trúi því og vona að þetta sé hárrétt ákvörðun hjá mér.“ Emil Barja var ráðinn sem þjálfari Stjörnunnar en Hilmar Smári hefur haft góða reynslu af honum. Hilmar er uppalinn í Haukum og spilaði þar með Emil sem spilaði nær allan sinn feril hjá félaginu. „Ég var sá fyrsti sem nefndi hans nafn til að taka við Stjörnunni. Ég hef fulla trú á honum. Þegar ég spilaði með honum var hann eiginlega orðinn meiri þjálfari en leikmaður, orðinn dálítið gamall og lúinn karlinn, illt í bakinu og ökklanum,“ sagði Hilmar Snær hlæjandi og bætti við að hann hefur staðið sig vel sem þjálfari kvennaliðs Hauka. „Hann hefur alltaf verið mikill fyrirmyndarþjálfari fyrir mér svo ég hef fulla trú á honum, og við allir hérna hjá Stjörnunni. Ég held að hann muni pluma sig gríðarlega vel hérna“ Geta tekið stórt stökk að HM með sigri Hilmar Smári er nú staddur við æfingar með íslenska landsliðinu í körfubolta þar sem Ísland keppir tvo leiki gegn Ítalíu og Bretlandi í undankeppni heimsmeistaramótsins. Ísland getur með sigri á Ítalíu tekið stórt stökk í átt að heimsmeistaramótinu. „Við erum kannski búnir að vinna einhverja leiki en við höfum ekki afrekað neitt fyrr en við náum að klára þessa tvo leiki. Við stefnum auðvitað á sigur í báðum leikjum og það er í raun engin breyting á því hvernig við undirbúum okkur núna. Við erum alveg meðvitaðir um að það er pressa á okkur og við viljum ná í alla vega einn sigur í þessum glugga. Það væri mjög stórt fyrir íslenskan körfubolta að komast skrefi nær“ Ísland vann fyrri leikinn á móti Ítalíu og munu þeir því mæta tvíefldir til leiks í Laugardalshöllina á morgun. „Það er sama hvaða liði þeir tefla fram, þeir eru alltaf sterkir. Ítalía er náttúrulega gríðarlega stór körfuboltaþjóð og ég held að þeir vilji ekkert tapa fyrir litla Íslandi tvisvar í röð. Við munum gera allt til að koma í veg fyrir það“ Viðtalið má sjá í heild í spilaranum að neðan: Klippa: Hilmar Smári framlengir við Stjörnuna
Stjarnan Bónus-deild karla Landslið karla í körfubolta HM 2027 í körfubolta Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Körfubolti „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ Sport Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Körfubolti Fleiri fréttir Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Sjá meira