„Þú verður að hafa stjórn á tækninni sem þú nýtir“ Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 30. júní 2026 12:18 Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar segir málið komið til þeirra. Vísir/Einar Gagnaleki héraðssaksóknara er nú til rannsóknar hjá Persónuvernd. Forstjórinn segir að það þurfi að vera hægt að treysta því að upplýsingar um þá sem leita til stofnana eða eru undir rannsókn séu ekki aðgengilegar öðrum.
Embætti héraðssaksóknara tilkynnti sjálft um öryggisbrestinn til Persónuverndar en málið varðar nöfn fimm einstaklinga sem sættu sakamálarannsókn. Nöfnin birtust í kynningarmyndbandi sem ísraelska fyrirtækið Cellebrite gerði, en embættið hefur notað hugbúnað þeirra til að afrita síma og rannsaka innihald þeirra. „Þetta er tilkynnt til okkar sem öryggisbrestur samkvæmt persónuverndarlöggjöfinni og það í rauninni snýr að því að ef upplýsingar fara annað eða eru aðgengilegar öðrum heldur en eiga að vera aðgengilegar, þá þarf að tilkynna um það sem brest á öryggi hjá viðkomandi ábyrgðaraðila,“ segir Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar. Viðurlög eru við brotum sem þessum. „Það eru viðurlög samkvæmt persónuverndarlöggjöfinni og það er einnig samkvæmt löggæslulögunum sem það þyrfti þá að skoða í þessu tilfelli af því að hér er um löggæsluaðila að ræða. Viðurlögin geta samkvæmt þeim lögum verið eitt ár og svo allt að þremur árum samkvæmt persónuverndarlöggjöfinni.“ Tryggja þurfi að upplýsingar séu ekki aðgengilegar öðrum. „Aðalatriðið er náttúrulega það að það þarf að vera hægt að treysta því almennt að þeir sem leita til stofnana eða eru undir rannsóknum eða eiga sínar upplýsingar undir hjá stjórnvöldum eða fyrirtækjum eigi almennt að geta treyst því að upplýsingar verði ekki aðgengilegar öðrum.“ Mikilvægt sé þegar verið er að vinna með viðkvæm gögn og nýja tækni að skilja tæknina vel. „Þú verður að hafa stjórn á tækninni sem þú nýtir. Eftir því sem upplýsingarnar eru viðkvæmari þá er gerð meiri krafa um það að þú skiljir virkni tækjanna og tólanna sem þú ert að nota.“ Þá þurfi að vera á hreinu hverjir hafa aðgang að gögnunum ef tækni er nýtt líkt og gervigreind. „Ef þú í starfsemi ákveður að nota einhverja tækni, eitthvert tól, þá þarftu að skilja hvernig tæknin virkar. Hefurðu stjórn á henni og hvaða upplýsingar seturðu í tæknina og í tólið? Ef eignarhaldið er erlent og þú hefur ekki heldur stjórn á þessu í rauninni, þá náttúrulega myndi maður segja, þá ertu ekki að fara með nein viðkvæm gögn inn í slíkt.“
Lögreglumál Persónuvernd Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Sjá meira