Traust til íslenskra yfirvalda sagt fara vaxandi Kjartan Kjartansson skrifar 30. júní 2026 12:51 Hlutfall þeirra sem treysta ríkisstjórn Íslands nú mælist 23 prósentustigum hærra en árið 2023 í tíð ríkisstjórnar Vinstri grænna, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Vísir/Vilhelm Umtalsvert fleiri segjast nú bera mikið traust til ríkisstjórnarinnar en fyrir þremur árum í alþjóðlegri könnun Efnahags- og framfarastofnunarinnar. Traust til Alþingis hefur einnig aukist á sama tíma og tiltrú á fjölmiðlum hefur dvínað.
Almennt mælist traust til stofnana samfélagsins meira á Íslandi en í hinum 37 ríkjunum þar sem afstaða fólks var mælt í könnuninni sem var gerð í nóvember og desember. Þannig er hlutfall þeirra sem ber traust til ríkisstjórnarinnar 59 prósent borið saman við fjörutíu prósentin að meðaltali í OECD-ríkjunum og 48 prósentin á Norðurlöndunum. Traust til ríkisstjórnarinnar jókst jafnframt umtalsvert frá því í síðustu könnun OECD sem var gerð árið 2023. Þá sögðust 36 prósent bera mikið traust til ríkisstjórnar Íslands. Alþingi nýtur mikils trausts 52 prósent Íslendinga samkvæmt könnuninni en hlutfallið var 36 prósent árið 2023 og 48 prósent árið 2021. Traust á stjórnmálaflokkum jókst úr tuttugu prósentum í 29 prósent. Stjórnmálaflokkarnir njóta hins vegar minnst trausts þeirra stofnana sem spurt var um. Um 75 prósent báru mikið eða frekar mikið traust til lögreglu, 68 prósent til opinberrar stjórnsýslu og 64 prósent til dómstóla. sem var töluvert yfir meðatali OECD-ríkjanna sem var 45 prósent. Fjölmiðlar njóti enn mikils traust á Íslandi í samanburði við mörg önnur OECD-ríki. Traustið mældist 51 prósent í könnuninni, ellefu prósentustigum minna en í fyrir þremur árum.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Fjölmiðlar Lögreglan Skoðanakannanir Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira