„Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Agnar Már Másson og Birgir Olgeirsson skrifa 30. júní 2026 18:31 „[Þá] þurfum við sem samfélag að spyrja okkur og líta inn á við: Af hverju er þessi gríðarlega eftirspurn? Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni, sem kostar tuttugu til tuttugu og fimm þúsund, jafnvel fleiri en eitt gramm um hverja helgi og jafnvel í miðri viku líka?“ segir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar. Vísir/Ívar Fannar Lögregluþjónn hjá rannsóknardeild spyr sig hvers vegna svona mikil eftirspurn sé eftir kókaíni og amfetamíni á Íslandi enda ekki um ódýr fíkniefni að ræða. Þegar sé búið að slá met í fíkniefnahaldlagninu í ár en met var síðast slegið í fyrra.
Í dag var greint frá tveimur stórum málum þar sem lögregla lagði hald á fíkniefni í tuga kílóa tali; annars vegar var 106 kílóum af kókaíni smyglað með álflutningaskipi til Straumsvíkur og hins vegar var 56 kílógrömmum af amfetamíni smyglað til Íslands með Norrænu. Í tilfelli kókaínsmyglsins voru níu manns handteknir, þrír íslenskir ríkisborgarar og sex erlendir. Fíkniefnamagnið úr álskipinu er metið upp á hátt í þrjá milljarða króna. Er þetta mesta kókaínmagn sem lögregla hefur lagt hald á. Í tilfelli Norrænu höfðu fíkniefnin verið falin í húsbíl og ökumaður hans, sem er erlendur ríkisborgari á sextugsaldri að sögn lögreglu, handtekinn á Norðurlandi fyrr í mánuðinum, en í bílnum hafi einnig fundist átta kíló af kókaíni, þrjú kíló af ketamíni, eitt kíló af kristal metamfetamíni og kíló af „bleiku kókaíni“, sem er blanda af ketamíni og MDMA. Skalinn þegar sprunginn Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar, hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að lögregla hafi lagt hald á efnin úr Norrænu 12. júní. Ævar segir að bleika kókaínið svokallaða sé ekki algengt á götum Íslands. Árið 2025 var metár í haldlagningu fíkniefna en nú er nýtt met slegið. „Sá skali er sprunginn nú þegar,“ segir Ævar en hann kvaðst ekki hafa nákvæma tölu á magnið. Af hverju er svona mikil eftirspurn? Ævar segir að mikil eftirspurn sé eftir þessum fíkniefnum í dag. „Það er gríðarleg eftirspurn í samfélaginu og ég held að það sé stóra spurningin: Af hverju er svona mikil eftirspurn eftir þessum fíkniefnum?“ Hann segir lögreglu hafa mikla þekkingu á fíkniefnamarkaðnum. „Við erum með nokkuð góðan púls á ástandinu og markaðnum hverju sinni. Við finnum það alveg eftir svona stórar haldlagningar að það skapast þurrð á markaðnum. Við sjáum það líka í okkar störfum hér um helgar og tengt skemmtanalífinu að það er gríðarleg fíkniefnaneysla sem fylgir því.“ Hann segir lögregluna nógu vel í stakk búna til að taka á þessum málum, sem og tollgæslan og önnur löggæsluyfirvöld, en gæti alltaf bætt við sig til dæmis með tækjum eða frekari mannafla. Hann segir að margt þurfi til þess að stemma stigu við fíkniefnasölu hér á landi. „Eins og ég kom inn á hér áðan þurfum við sem samfélag að spyrja okkur og líta inn á við: Af hverju er þessi gríðarlega eftirspurn? Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni, sem kostar tuttugu til tuttugu og fimm þúsund, jafnvel fleiri en eitt gramm um hverja helgi og jafnvel í miðri viku líka?“
Fíkniefnabrot Lögreglumál Hafnarfjörður Reykjavík Norræna Straumsvíkurmálið Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent Fleiri fréttir Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Sjá meira