Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Smári Jökull Jónsson og Eiður Þór Árnason skrifa 2. júlí 2026 19:34 Inga Sæland er barna- og menntamálaráðherra. Hún hefur boðað breytingar sem hafa fallið í grýttan jarðveg. Vísir/Vilhelm Tæpt hálft ár er liðið síðan Inga Sæland tók við embætti mennta- og barnamálaráðherra og samband hennar við kennaraforystuna hefur verið stormasamt. Nokkrum sinnum hefur slegið í brýnu og spennan er mikil. Skýrast kom það fram á kennaraþingi í apríl þegar Inga kynnti breytingar á einkunnagjöf í grunnskólum.
Nokkrir kennarar gengu út undir ræðu hennar og sýndu viðbrögð kennara í salnum að orð Ingu féllu ekki í góðan jarðveg. Þá sakaði formaður Kennarasambandsins ráðherra um að hafa ekki haft samráð við kennara en Inga vísaði þessu á bug. Einkunnamál hafa verið stærsta deiluefnið. Inga ákvað að taka upp tölueinkunnir á ný í stað bókstafa og tákna og segir tölurnar skýrari. Kennarar telja hins vegar að vandinn liggi frekar í flóknu hæfni- og matsviðmiðunum en ekki einkunnakerfinu sjálfu. Deilt um kennsludaga Annað ágreiningsefni er hið svokallaða símabann. Í júní boðaði ráðuneytið bann við símum og snjalltækjum nemenda á skólatíma til að efla námsfrið og félagsleg samskipti. Gagnrýnendur benda meðal annars á óljósa ábyrgð á tækjunum, lagalegar takmarkanir á því að taka eigur af nemendum og að margir skólar hafi þegar reglur um símanotkun sem virki vel. Inga Sæland á þingi Kennarasambands Íslands í apríl þar sem kennarar gengu út. Vísir/Vilhelm Í umræðuhópum kennara á Facebook voru stór orð látin falla þegar reglugerðin var birt í samráðsgátt stjórnvalda þó að ljóst sé að einnig eru skiptar skoðanir á málefninu meðal kennara. Þá hafa ummæli ráðherra um að kennsludagar hér séu færri en á Norðurlöndum og áform um að birta niðurstöður einstakra skóla úr samræmdum prófum opinberlega einnig farið illa í marga kennara. Umræða um kennsludagana var sérstaklega eldfim og ýmist var ráðherra sökuð um að hreinlega segja ósátt eða tefla fram röngum gögnum. Gjáin á milli aðila virðist djúp og breið og lítið sem bendir til þess að hún sé að minnka. Eðlilegt að kennarar slái varnagla Kristín Björnsdóttir, formaður Kennarafélags Reykjavíkur, segir það mjög eðlilegt að þeir sem vinni að bættum starfsskilyrðum kennara slái varnagla við breytingum sem sumar hverjar virðast eiga að ganga hratt í gegn. „Af því að sagan sýnir að þær breytingar sem hafa verið gerðar á skólakerfinu taka tíma og þær krefjast samráðs við fagfólkið sem starfar í skólunum,“ sagði hún í kvöldfréttum Sýnar. Kristín Björnsdóttir er formaður Kennarafélags Reykjavíkur.Vísir/Einar Hvernig myndir þú lýsa samskiptum ykkar í forystunni við ráðherra? „Ég tel að það sé farsælt fyrir alla hagaðila að samskipti séu ávallt fagleg og taki mið af þörfum kerfisins. Það þarf að hlusta á gagnrýnisraddir og sýn þeirra fagaðila sem starfa við kennsluna. Það er í rauninni bara það sem er eðlilegt að við köllum eftir, að það sé aukið samráð og að það sé hlustað á þær gagnrýnisraddir og að það sé tekið mark á þeim varnöglum sem verið er að slá, af því að þeir eru ekki úr lausu lofti gripnir,“ bætir Kristín við. Óljóst hvort ráðherra sé opin fyrir auknu samstarfi Ertu sammála því að einhvers konar gjá virðist hafa myndast á milli menntamálaráðherra annars vegar og kennaraforystunnar hins vegar? „Það er óhætt að segja að það beri við annan tón í þeim upplýsingum sem koma nú frá barna- og menntamálaráðuneytinu en ég fullyrði það að kennaraforystan starfar í umboði kennara og mun ávallt vera til samstarfs.“ Aðspurð hvort hún telji að mennta- og barnamálaráðherra sé opin fyrir auknu samráði við kennarastéttina segir Kristín það erfitt fyrir hana að meta það. „Það er augljóst í mínu starfi að kennarar og skólafólk vilja standa fyrir umbótum og skólakerfið er þannig að það þarf alltaf að vera í stöðugri þróun. Skólafólkið vill þróunina og þá miðum við samskiptin og samtalið eftir því sem er best fyrir kerfið, fyrir fólkið sem starfar í kerfinu og að sjálfsögðu fyrir nemendur og fjölskyldur.“
Skóla- og menntamál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Grunnskólar Flokkur fólksins Tengdar fréttir Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Barna- og menntamálaráðherra segir misræmi í einkunnagjöf við útskrift nemenda úr grunnskóla búa til falskt öryggi. Verið sé að mismuna nemendum sem komast ef til vill ekki í sitt fyrsta val um framhaldsskóla vegna þessa. Þá er hún döpur yfir fylgi Flokks fólksins sem mælist utan þings. 2. júlí 2026 08:20 „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir margt brýnna í skólakerfinu í dag en að setja reglur um símanotkun og að samtal nemenda og kennara um sitt umhverfi sé alltaf gáfulegra en miðstýrðar reglur sem geti skapað óþarfa vanda á milli þeirra. Samkvæmt reglugerð eigi að setja upp skápa en ekki liggi fyrir hver eigi að fylgjast með þeim eða hvort að barnið skili símanum þangað. 19. júní 2026 08:41 Mest lesið Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Innlent Fleiri fréttir Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Sjá meira
Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Barna- og menntamálaráðherra segir misræmi í einkunnagjöf við útskrift nemenda úr grunnskóla búa til falskt öryggi. Verið sé að mismuna nemendum sem komast ef til vill ekki í sitt fyrsta val um framhaldsskóla vegna þessa. Þá er hún döpur yfir fylgi Flokks fólksins sem mælist utan þings. 2. júlí 2026 08:20
„Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir margt brýnna í skólakerfinu í dag en að setja reglur um símanotkun og að samtal nemenda og kennara um sitt umhverfi sé alltaf gáfulegra en miðstýrðar reglur sem geti skapað óþarfa vanda á milli þeirra. Samkvæmt reglugerð eigi að setja upp skápa en ekki liggi fyrir hver eigi að fylgjast með þeim eða hvort að barnið skili símanum þangað. 19. júní 2026 08:41