Fréttir

Stað­festa hnífstunguárás: Gerandinn hand­tekinn

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Lítill vasahnífur sást á vettvang í gærkvöldi, að sögn vitnis.
Lítill vasahnífur sást á vettvang í gærkvöldi, að sögn vitnis. Aðsent

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning í gærkvöldi um blóðugan aðila sem var sagður hafa orðið fyrir líkamsárás. Í ljós kom að viðkomandi hafði verið stunginn með hníf.

Frá þessu er greint í yfirliti lögreglu yfir verkefni næturinnar en leiða má líkur á því að um sé að ræða sama atvik og fréttastofa greindi frá í gærkvöldi, þar sem vitni gengu fram á blóðug föt og blóðslettur á gangstétt við Grettisgötu.

Helena Rós Sturludóttir, upplýsingafulltrúi Ríkislögreglustjóra, staðfesti við fréttastofu að sérsveitin hefði verið kölluð til aðstoðar en verið snúið við.

Í yfirlitinu segir að greinagóð lýsing hafi fylgt tilkynningunni og að lögregla hafi haft upp á árásarmanninum stuttu síðar. Sá var handtekinn og vistaður í fangageymslu.

Þolandinn var fluttur á bráðamóttöku til aðhlynningar.

Málið er í rannsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×