Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Sigurgeir Þorkelsson skrifar 5. júlí 2026 14:19 Pétur er ekki hrifinn af fyrstu verkum nýs meirihluta. Samsett Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, segir það að fylgjast með asanum í meirihlutanum á sínum fyrstu starfsdögum minni á látagang í norsku þáttunum Exit. Hann hefur litla trú á að 300 milljónir muni raunverulega sparast með nýlegum uppsögnum og gagnrýnir að mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar hafi verið lögð niður. „
Þetta kemur ekki á óvart, flokkarnir voru búnir að boða þetta,“ segir Pétur um niðurskurðaraðgerðir nýja meirihlutans. „Mér hefur ekki fundist vandað til verka, þetta hefur verið svolítið eins og norsku Exit-þættirnir, rosa tempó og barátta að koma öllu í gegn.“ Meirihlutinn gaf það út þegar ráðist var í uppsagnir á upplýsingafulltrúum borgarinnar, auk starfsfólks mannréttindaskrifstofu, að árlega myndu sparast 300 milljónir króna. „Þau ætla að ráða sex til sjö [upplýsingafulltrúa] í staðinn, tveir af þeim sem fengu reisupassann fá að starfa áfram til áramóta og svo ætla þau að úthýsa alls konar PR-verkefnum til einkarekinna PR-stofa, svo maður sér ekki alveg hagræðinguna í þessu.“ Hildur Björnsdóttir borgarstjóri svaraði í vikunni skriflega fyrirspurn fréttastofunnar um hvernig málum yrði háttað næstu misserin í kjölfar uppsagnanna. Hún fullyrðir að engum málum hafi verið útvistað fram til þessa og staðfestir að tveir upplýsingafulltrúanna muni starfa áfram til áramóta til að brúa bilið. Ekkert kom þó fram í svörum hennar um áætlanir um að sex til sjö nýir upplýsingafulltrúar yrðu ráðnir. Ekki fengust viðbrögð frá Hildi við vinnslu fréttarinnar. Mannréttindaskrifstofa borgarinnar horfin á braut Pétur er gagnrýninn á ákvörðun meirihlutans að leggja niður Mannréttindaskrifstofu borgarinnar. „Fyrsta verkefni þeirra er að leggja niður mannréttindaskrifstofu þegar mannréttindi eiga undir högg að sækja um allan heim,“ segir Pétur ósáttur. Komið hefur fram að einhver verkefni mannréttindaskrifstofu muni færast annað, meðal annars inn á skóla- og frístundasvið og velferðarsvið borgarinnar. Pétur er ekki hrifinn af því fyrirkomulagi að verkefni skrifstofunnar renni inn í önnur svið og treystir því ekki að meirihlutinn muni sinna þeim af kostgæfni. Meirihlutinn hafi meðal annars sýnt skoðun sína í mannréttindamálum þegar hann sagði upp leigusamningi við Hjólabúa. Pétur var til viðtals í Sprengisandi hjá Kristjáni Kristjánssyni.
Reykjavík Borgarstjórn Sveitarstjórnarmál Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira