Tugþúsundir mótmæltu í Tirana Sigurgeir Þorkelsson skrifar 5. júlí 2026 17:05 Til vinstri eru hjónin Jared Kushner og Ivanka Trump. Til hægri má sjá mótmælendur í Tirana bera steypukökuna frægu og flamingóa. Samsett Tugþúsundir Albana mótmæltu í höfuðborginni Tirana í gærkvöldi, þrítugasta og fimmta daginn í röð. Kallað er eftir afsögn forsætisráðherrans Edi Rama, stjórnarskrárumbótum og raunhæfum aðgerðum gegn spillingu í landinu.
Fyrst um sinn, þegar mótmælaaldan hófst, snérust mótmælin um fyrirhugaða uppbyggingu lúxushótels á náttúruverndarsvæði. Félagið á bak við fjárfestinguna tengist Jered Kushner, eiginmanni Ivönku Trump, og einum nánasta ráðgjafa Bandaríkjaforseta. Mótmælendur kölluðu á „nýja Albaníu“ og, eins og fyrr sagði, eftir afsögn forsætisráðherrans og ríkisstjórnar hans. Mótmælendur gerðu sér einnig mat úr því að mótmælin hittu á sextugasta og annan afmælisdag forsætisráðherrans, sungu fyrir hann falskan afmælissöng og báru afmæliskökur gerðar úr steypu, sem eiga að tákna hina fyrirhuguðu uppbyggingu. Þá var einnig reist upp brjóstmynd af forsætisráðherranum þar sem reipi var síðan bundið um höfuð hennar og hún felld niður, sem er myndlíking sem almennt er tengd við fall einræðisherra. Mótmælin hafa verið kennd við flamingó-fugla og báru mótmælendur blöðrur og skilti því tengt. Sagt er að náttúruverndarsvæðið sem er í hættu sé meðal annars búsvæði fuglategundarinnar. Lúxushótelið fyrirhugaða hefur þegar sett áform ríkisstjórnarinnar um að ganga í ESB í uppnám.
Albanía Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Fleiri fréttir Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Sjá meira