Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Atli Ísleifsson skrifar 6. júlí 2026 06:08 Þrír gistu fangageymslu lögreglu morgun. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í nótt eftir að óskað var eftir aðstoð vegna hávaða frá heimahúsi þar sem húsráðandi var orðinn heldur æstur að horfa á leik Englands og Mexíkó á HM í fótbolta í nótt.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu þar sem segir frá verkefnum gærkvöldsins og næturinnar, en leiknum lauk með 3-2 sigri Englendinga. Í tilkynningunni segir að alls hafi 75 mál verið skráð hjá lögreglu frá klukkan 17 í gær og til fimm í morgun og gistu þrír fangaklefa í morgun. Fram kemur að í miðborg Reykjavíkur hafi verið óskað eftir aðstoð lögreglu á veitingastað vegna manns sem gat ekki borgað fyrir veitingar sem hann hafði neytt á staðnum. Þá var lögregla einnig kölluð til eftir að tilkynnt hafi verið um vasaþjófa í miðborginni, en þeir fundust ekki þrátt fyrir talsverða leit. Í miðborginni var sömuleiðis óskað eftir aðstoð lögreglu á bar vegna manns sem var til vandræða. Sá var handtekinn og færður á lögreglustöð þar sem málið var afgreitt og að því loknu var manninum sleppt. Þá segir að brotist hafi verið inn í verslun í miðborg Reykjavíkur og peningakassa stolið. Í hverfi 102 í Reykjavík var maður handtekinn vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna, að vera án ökuréttinda, sölu og dreifingu fíkniefna og peningaþvættis. Loks segir að í Árbæ hafi maður í mjög annarlegu ástandi sökum fíkniefnaneyslu verið handtekinn þar sem hann tálmaði störf lögreglu og hafði í hótunum við lögreglumenn. Maðurinn var vistaður í fangaklefa.
Lögreglumál Hafnarfjörður Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Sjá meira