Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi Jón Þór Stefánsson skrifar 7. júlí 2026 13:49 Héraðsdómur Vesturlands dæmdi í málinu. Vísir/Vilhelm Héraðsdómur Vesturlands dæmdi í gær karlmann í eins árs fangesli fyrir brot í nánu sambandi, en hann beitti sambýliskonu sína ofbeldi frá því í nóvember í fyrra þangað til í mars á þessu ári.
Með brotum sínum var maðurinn sagður hafa endurtekið og á alvarlegan hátt ógnað lífi, heilsu og velferð konunnar. Í fyrsta lagi var manninum gefið að sök að hafa slegið ítrekað í andlit konunnar utandyra. Svo hafi hann sparkað í hana, tekið hana hálstaki, kastað í jörðina, og svo dregið hana eftir jörðinni. Fyrir vikið hlaut konan ýmsa áverka og varð fyrir mikilli geðshræringu. Maðurinn réðst síðan á konuna í lok janúar síðastliðins á heimili þeirra með því að taka harkalega undir kjálka hennar og háls og kreista, auk þess að slá hana í höfuðið, með þeim afleiðingum að hún hlaut mar á hálsi og áverka á höfði. Í þriðja skiptið sló hann konuna með flötum lófa í andlitið, tók um höfuð hennar og þrýsti því upp að hörðu yfirborði með þeim afleiðingum að hún rak höfuðið í og hlaut áverka, auk þess sem hann tók hana hálstaki. Fyrir vikið hlaut konan kúlu á enni, sár á nefi, gat og blæðingu á hægri hljóðhimnu, gripför á hálsi og marbletti víðs vegar um líkamann. Auk þess var maðurinn ákærður fyrir umferðarlagabrot. Hann játaði sök. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að hann hefur áður hlotið dóm, þriggja ára fangelsi frá Landsrétti. Líkt og áður segir hlaut hann eins árs fangelsisdóm. Þá er honum gert að greiða konunni 4,4 milljónir króna í bætur og 2,7 milljónir í málskostnað.
Dómsmál Heimilisofbeldi Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Kynntu þingmálaskrá vetrarins Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Erlent Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Sjá meira