Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku Árni Sæberg skrifar 10. júlí 2026 15:29 Sindri Snær Birgisson og Ísidór Nathansson við meðferð málsin í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir margt löngu. Vísir/Hulda Margrét Ríkissaksóknari telur ekki efni til að óska eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar vegna sýknudóms Landsréttar í hryðjuverkamálinu svokallaða. Því er einu umtalaðasta sakamáli samtímans lokið, rétt tæpum fjórum árum eftir að þeir Sindri Snær Birgisson og Ísidór Nathansson voru handteknir vegna gruns um skipulagningu hryðjuverka.
Frá þessu er greint á vef Ríkissaksóknara. Dómur Landsréttar var kveðinn upp þann 18. júní síðastliðinn. Málið hefur verið eitt umfangsmesta og umdeildasta sakamál síðari ára hér á landi. Mennirnir voru handteknir í september 2022 í aðgerðum lögreglu í Kópavogi og Mosfellsbæ. Þeim var gefið að sök að hafa lagt á ráðin um hryðjuverk, en þeir höfðu áður verið sýknaðir af þeim hluta ákærunnar bæði í Héraðsdómi Reykjavíkur og Landsrétti. Tvær umferðir í Landsrétti Í héraði voru þeir hins vegar sakfelldir fyrir vopnalagabrot. Sindri Snær hlaut þá tveggja ára fangelsisdóm og Ísidór átján mánaða dóm. Landsréttur mildaði síðar þá refsingu, í átján mánuði yfir Sindra og fimmtán mánuði yfir Ísidóri, en sýknaði þá áfram af hryðjuverkahluta ákærunnar. Hæstiréttur ómerkti þann dóm Landsréttar í mars síðastliðnum. Hæstiréttur taldi annmarka hafa verið á sönnunarmati Landsréttar og vísaði málinu aftur þangað til nýrrar meðferðar. Niðurstaða reist sönnunargildi munnlegs framburðar Í tilkynningu Ríkissaksóknara segir að með nýjum dómi Landsréttar hafi verið brugðist við þeim atriðum sem Hæstiréttur gerði athugasemdir við og voru grundvöllur heimvísunarinnar. Niðurstaða Landsréttar um að sýkna Sindra Snæ og Ísidór af nefndum brotum sé að verulegu leyti reist á mati réttarins á sönnunargildi munnlegs framburðar ákærðu og vitna, sem Hæstiréttur getur ekki endurmetið.
Grunaðir um skipulagningu hryðjuverka Dómsmál Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Fleiri fréttir Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Sjá meira