Segir FIFA skoða að fjölga liðum á HM í 64 Sindri Sverrisson skrifar 12. júlí 2026 18:02 HM hefur þegar stækkað í 48 liða mót í forsetatíð Gianni Infantino og gæti haldið áfram að stækka á næsta móti. Getty Heimsmeistaramót karla í fótbolta er senn á enda og að móti loknu mun FIFA skoða þann möguleika að fjölga liðum á mótinu enn frekar fyrir HM 2030.
Gianni Infantino, forseti FIFA, segir engan vafa á því að það hafi heppnast vel að fjölga liðum úr 32 í 48 fyrir yfirstandandi HM. Ljóst er að ekki verða færri lið á HM 2030 sem leikið verður í sex löndum, í tilefni af 100 ára afmæli HM. Úrúgvæ, Argentína og Paragvæ fá einn leik hvert en hinir leikirnir, 101 leikur ef liðin verða 48, fara fram í Marokkó, Portúgal og á Spáni. Infantino hefur nú staðfest að taka eigi til skoðunar að fjölga liðum á HM í 64. Adam Crafton, blaðamaður The Athletic, segir þó mögulegt að Infantino vilji með ummælum sínum einfaldlega auka vinsældir sínar í Suður-Ameríku, en þaðan kemur mesti þrýstingurinn á að mótið verði stækkað, í stað þess að vilja í alvöru stækka mótið enn frekar. This would be directly against the wishes of multiple fifa vice-presidents and some of the most senior people institutionally in the organization. It could be he does it sincerely, or he’s just signposting to the South Americans (the ones who want it) that he *tried.* https://t.co/o1ZpbhpWrp— Adam Crafton (@AdamCrafton_) July 12, 2026 „Þetta er svo sannarlega mál sem við munum skoða og ræða í viðeigandi nefndum eftir heimsmeistaramótið,“ sagði Infantino við svissneska miðilinn Bluewin. „Þegar heimsmeistaramót er skipulagt er mikilvægt að skipuleggja það fyrir allan heiminn – ekki bara Evrópu og Suður-Ameríku – heldur í raun allan heiminn. Allar þjóðir ættu að geta látið sig dreyma um að taka þátt í heimsmeistaramótinu. Það má sjá að gæði liðanna eru gríðarlega mikil – og þau fara sífellt batnandi um allan heim. Ef minni löndum er ekki gefið tækifæri til að taka þátt í heimsmeistaramótinu mun þau skorta hvatann til að halda áfram að bæta sig,“ sagði Infantino jafnframt. Undanúrslitin á HM fara fram á þriðjudags- og miðvikudagskvöld og nýir heimsmeistarar verða svo krýndir næsta sunnudagskvöld. Infantino er hæstánægður með hvernig til hefur tekist í ár. „Öll liðin spiluðu á háu stigi. Lið frá öllum heimsálfum skoruðu mörk og fengu að minnsta kosti eitt stig,“ sagði hann. „Níu af tíu afrískum liðum komust í útsláttarkeppnina. Á síðasta heimsmeistaramóti voru aðeins fimm lið frá Afríku. Það sýnir bara hversu mikilvægt það er að hafa öll lið með – að gefa þeim þetta tækifæri til að taka þátt,“ sagði Infantino.
HM 2030 í fótbolta Fótbolti Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Sjá meira