Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Árni Sæberg skrifar 14. júlí 2026 14:42 Kunsang og Erna telja vissara að geyma ekkert reiðufé á veitingastöðum sínum. Vísir/Ramen Momo Eigendur veitingastaðanna Ramen Momo hafa ákveðið að hætta að taka við reiðufé vegna innbrotahrinu sem nú gengur yfir Reykjavík. Brotist var inn í svokallað preppeldhús veitingastaðanna í nótt og verðmætum var stolið. Þar voru þó engir peningar geymdir.
Frá þessu er greint á Instagramsíðu veitingastaðanna, sem eru á Tryggvagötu og í Bankastræti. Þar segir að þjófarnir hafi haft á brott tvö rafmagnshlaupahjól, spjaldtölvu og myndavél af gerðinni GoPro. View this post on Instagram A post shared by Homemade Ramen & Dumplings (@ramenmomo) Alls ekki einsdæmi „Því miður virðist þetta ekki vera einsdæmi, því það hefur verið brotist inn á fullt af stöðum síðustu daga.“ Það er ekki ofsögum sagt enda greindi Vísir frá því í morgun að það sem af er mánuði hafi 61 tilkynning um innbrot borist Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þar af hafi 45 borist lögreglumönnum á lögreglustöðinni á Hverfisgötu, sem halda uppi lögum og reglu í Vesturbæ, Miðborg, Hlíðum, Laugardal, Háaleiti og á Seltjarnarnesi. Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Hverfisgötu, segir í samtali við Vísi að það sé óvenjumikið af innbrotum. Mættir á vettvang eftir sjö mínútur en þjófarnir þegar farnir „Við erum með Securitas og tryggingar, en það skilar hvorki dótinu til baka né bætir upp fyrir tímann og orkuna sem fer í svona vesen,“ segir í Instagramfærslunni en Erna Pétursdóttir, sem á Ramen Momo ásamt eiginmanni sínum, Kunsang Tsering, segir í samtali við Vísi að menn á vegum Securitas hafi verið mættir á vettvang sjö mínútum eftir að innbrotsins varð vart en þá hafi innbrotsþjófarnir þegar verið á bak og burt. Sem betur fer sé um svokallað preppeldhús veitingastaðanna að ræða og því hafi engir peningar verið geymdir þar. Þetta hafi þó verið leiðinleg byrjun á deginum. Þau hafi einu sinni áður lent í innbroti, á meðan faraldur kórónuveiru geisaði, og þá hafi þau íhugað að hætta að taka við reiðufé á veitingastöðum sínum en viðskiptavinir hafi mótmælt. Nú hafi þau ákveðið að hætta að taka á móti reiðufé frá og með morgundegi, enda sé það skynsamlegast í því ástandi sem nú ríkir í miðborginni. „Þá erum við ekki að gefa fólki tilefni til þess að brjótast inn og stela pening.“
Lögreglumál Veitingastaðir Íslenska krónan Reykjavík Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira