Boðar frekari breytingar Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 15. júlí 2026 12:33 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir brottfararstöð koma til með að hafa áhrif. Vísir/Ívar Fannar Dómsmálaráðherra segir betri stjórn vera að nást á útlendingamálum en á fyrstu sex mánuðum ársins sóttu nærri helmingi færri um alþjóðlega vernd á Íslandi en fyrir tveimur árum. Ráðherrann boðar frekari breytingar þegar kemur að þessum málum og segir komu brottfararstöðvar næsta vetur munu hafa áhrif.
Á fyrstu sex mánuðum ársins sóttu sex hundruð sjötíu og fimm um alþjóðlega vernd á Íslandi. Þetta er svipaður fjöldi og í fyrra en þá voru umsækjendur sex hundruð og fimm á sama tía. Árið áður, eða 2022, voru þeir töluvert fleiri eða ellefu hundruð tuttugu og tveir. Ríflega sjötíu prósent umsækjenda voru frá Úkraínu og næstflestir, eða ellefu prósent, frá Venesúela. „Ég held að það sé að komast meiri stöðugleiki á í þessum málaflokki. Mér finnst við vera að ná betri stjórn á honum. Tölurnar eru þannig að yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem sækja um alþjóðlega vernd á Íslandi er fólk frá Úkraínu. Afstaða ríkisstjórnarinnar á Íslandi, eins og alls staðar í Evrópu, hefur verið sú að taka á móti því fólki,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. Hún segir flokk sinn leggja áherslu á að þeir sem hingað komi fái góðar móttökur og raunveruleg tækifæri til að spjara sig í samfélaginu. „Í því felst auðvitað líka að við höfum stjórn á fjöldanum, þannig að ég held að þarna geti tvö markmið farið saman. Við erum komin út úr þeim veruleika að tölurnar séu að stækka ár frá ári og þær eru að nálgast það að vera viðráðanlegri en þær hafa verið á liðnu ári,“ Á nýafstöðnu þingi voru fjögur frumvörp tengd útlendingamálum samþykkt á Alþingi og segir Þorbjörg Sigríður fyrirhugað að leggja næsta vetur fram fleiri mál. „Þetta eru mál sem varða dvalarleyfi, reglur um dvalarleyfi og ég myndi kannski líka segja það að ríkisstjórnin er að komast upp úr þeim hjólförum að ræða útlendingamál og innflytjendamál alltaf bara út frá því fólki sem er að sækja um alþjóðlega vernd. Við erum að horfa heildstætt á málaflokkinn.“ Þá segir hún að koma brottfararstöðvar muni hafa áhrif en hún verður að veruleika á þessu ári. „Á öllum þeim fundum sem ég hef setið, Schengen-fundum og með innanríkis- og dómsmálaráðherrum Evrópu, þá kemur það mjög skýrt fram að hluti af því að ná stjórn á umsóknum og málaflokknum öllum sé að það sjáist að kerfið í hverju landi fyrir sig virkar.“
Brottfararstöð fyrir útlendinga Alþingi Hælisleitendur Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira