Fjölnir þiggur sæti Aþenu Sindri Sverrisson skrifar 15. júlí 2026 13:02 Fjölnir snýr aftur í Bónus-deildina. Fjölnir/Toggi Media Fjölniskonur munu spila í Bónus-deildinni í körfubolta á næstu leiktíð eftir að hafa þegið sætið sem að Aþena skildi eftir laust þegar félagið dró sig úr keppni.
Frá því að síðustu körfuboltaleiktíð lauk hafa tvö lið, sem sæti áttu í Bónus-deildinni, gefið það frá sér. Hamar/Þór hélt sér uppi í deildinni en félögin tvö slitu svo samstarfi sínu og verða ekki með í Bónus-deildinni. Ármann, sem hafnað hafði í neðsta sæti Bónus-deildarinnar, tók því sæti Hamars/Þórs. Aþena, sem vann sig upp í Bónus-deildina með því að vinna 1. deildina, hefur svo einnig hætt við að taka sæti í Bónus-deildinni og nú hefur Fjölnir samþykkt að taka sætið. Fjölniskonur voru nálægt því að tryggja sér sæti í Bónus-deildinni í vor en töpuðu á endanum í umspili við Hamar/Þór. Kvennalið Fjölnis í körfubolta varð deildarmeistari í efstu deild vorið 2022 og var það fyrsti stóri titillinn í sögu félagsins. Félagið dró sig hins vegar úr keppni í deildinni tveimur árum síðar og hefur spilað í 1. deildinni síðustu tvö tímabil. Núna snýr liðið hins vegar aftur í efstu deild. Í tilkynningu á heimasíðu Fjölnis segir að liðið hafi sýnt að það eigi fullt erindi meðal þeirra bestu. „Fram undan er spennandi verkefni þar sem leikmenn, þjálfarar, sjálfboðaliðar og stuðningsfólk munu sameinast um að gera liðið samkeppnishæft í deild þeirra bestu. Nú er tækifærið til að fylkja sér á bak við liðið og styðja við áframhaldandi framþróun kvennakörfunnar í Grafarvogi,“ segir í tilkynningunni. Arnar B. Sigurðsson, formaður körfuknattleiksdeildar Fjölnis, segir í tilkynningunni: „Við höfum lagt mikla áherslu á markvissa uppbyggingu á kvennastarfinu og það er afar ánægjulegt að sjá þá vinnu skila sér. Ég er gríðarlega stoltur af þeim árangri sem liðið hefur náð á þessum tíma og hef fulla trú á því að stelpurnar standi sig vel í Bónus deildinni. Það sem gerir þetta enn ánægjulegra er að kjarninn í liðinu er skipaður uppöldum Fjölnisstelpum sem hafa unnið sér inn þetta tækifæri með dugnaði og metnaði. Þessi áfangi hefði þó aldrei náðst án þess öfluga samstarfs og stuðnings sem við höfum notið frá öllum þeim fjölmörgu sem koma að starfinu utan vallar. Það er ómetanlegt að hafa svona sterkt bakland og fyrir það erum við afar þakklát.“
Bónus-deild kvenna Fjölnir Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Sjá meira