FIFA rukkar tíu þúsund krónur fyrir að mæta á blaðamannafund Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. júlí 2026 18:52 Gianni Infantino, forseti FIFA, notar hvert tækifæri til að græða pening á heimsmeistaramótinu. Getty/Dominik Bindl/ Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, er ekki hætt að reyna að græða peninga á heimsmeistaramótinu í fótbolta og nú geta áhugasamir greitt fyrir að mæta á blaðamannafundinn fyrir úrslitaleik heimsmeistaramótsins.
FIFA mun halda blaðamannafundinn fyrir úrslitaleik heimsmeistaramótsins fyrir framan áhorfendur, en þeir þurfa að greiða yfir 80 Bandaríkjadali, meira en tíu þúsund íslenskar krónur, til að horfa á þjálfara og leikmenn liðanna tveggja sem keppa til úrslita, ásamt Gianni Infantino, forseta FIFA, ræða um leikinn á sunnudag í New Jersey. Blaðamannafundir fyrir stóra úrslitaleiki í fótbolta, þar á meðal heimsmeistaramótið og Meistaradeildina, eru venjulega haldnir daginn fyrir leik og eingöngu fyrir fjölmiðla og útsendingaraðila. En FIFA leyfir takmörkuðum fjölda áhorfenda aðgang að viðburðinum í Javits Center í New York-borg á föstudegi, tveimur dögum fyrir leikinn, og sleppir hefðbundnum blaðamannafundi daginn fyrir leik. The final fleece: FIFA's partner charging fans £60 to watch press conference with World Cup finalists and Gianni Infantino. https://t.co/UavFXwuabW— Martyn Ziegler (@martynziegler) July 15, 2026 ' Blaðamannafundurinn er haldinn af Fanatics, viðskiptafélaga FIFA, sem hluti af fjögurra daga Fanatics Fest-viðburði þeirra, þar sem aðdáendur geta einnig greitt fyrir eiginhandaráritanir og myndatökur með íþróttastjörnum. Fjögurra daga fjölskyldupassi er seldur á 857 Bandaríkjadali (108 þúsund íslenskar krónur) en eins dags passi fyrir fullorðna á blaðamannafundinn á föstudag kostar 81,54 Bandaríkjadali (10.252 íslenskar krónur). Þjálfarar og leikmenn keppnisliðanna munu mæta á viðburðinn en aðdáendur munu aðeins geta fylgst með og ekki spurt þátttakendur spurninga. Í auglýsingu fyrir viðburðinn sagði Fanatics: „Aðdáendur munu fá það fágæta tækifæri að sjá bæði úrslitaleiksliðin stíga á svið aðeins dögum fyrir úrslitaleik heimsmeistaramótsins og heyra beint frá leikmönnum og fulltrúum liðanna þegar þeir undirbúa sig fyrir stærsta leik íþróttarinnar.“ „Sérstakir gestir: Gianni Infantino og fleiri væntanlegir.“ Evrópumeistarar Spánar munu mæta sigurvegurum undanúrslitaleiks Englands og Argentínu á miðvikudag í úrslitaleik heimsmeistaramótsins á MetLife-leikvanginum á sunnudag.
HM 2026 í fótbolta FIFA Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Sjá meira