Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Agnar Már Másson skrifa 16. júlí 2026 08:13 Sigrún Tryggvadóttir er formaður Íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur. Sýn Formaður Íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur segir íbúa hrædda um heimili sín. Gangi þeir svo langt að hringja í nágranna til að láta athuga heimili sín á meðan þeir eru á ferðalagi. Tugir innbrota hafa verið tilkynnt lögreglu það sem af er mánuði.
Frá mánaðamótum hafa yfir sextíu innbrot verið tilkynnt á varðsvæði lögreglustöðvar eitt, sem meðal annars sér um miðborg Reykjavíkur. Íbúasamtök miðborgar Reykjavíkur (ÍMR) sendu frá sér ályktun í gær vegna „innbrotafaraldurs sem nú geisar í borginni“. „Þetta er faraldur sem geisar. Við höfum aldrei séð svona mikið af innbrotum yfir sumartímann og íbúum stendur ekki á sama. Nú er mikið af fólki í burtu og það er angist hjá mörgum að hringja og láta athuga heimili sín,“ segir Sigrún Tryggvadóttir, formaður Íbúasamtaka Reykjavíkur. Dæmi séu um að brotist sé inn í hús um hábjartan dag á meðan fólk er heima og barst fréttastofu ábending um eitt slíkt innbrot þar sem farið var inn bakdyramegin og rafskútum stolið. „Hvert dæmi er alveg einstakt. Það er verið að skemma dyr og glugga og fara inn í hús, það er verið að taka í hurðarhúna að aftanverðu og fara inn í kjallara og inn bakdyramegin, jafnvel þegar fólk er heima,“ segir Sigrún. „Auðvitað bregður fólki en það eru líka mjög vond innbrot, það er verið að taka mikið og taka verðmæti. Þannig að það verður að bregðast við þessu, það verður að gera eitthvað.“ Í ályktun ÍMR er kallað eftir því að borgaryfirvöld bregðist við í samráði við lögreglu, íbúasamtökin, fyrirtækjaeigendur og íbúa. Lögð er til nágrannavarsla og bætt öryggi. „Við ákváðum að stíga fram því það eru íbúar og fólk á bak við þetta, það verður að gera eitthvað í þessu. Við sendum á borgaryfirvöld og í ályktuninni er höfðað til þess að lögreglan og fleiri taki höndum saman,“ segir Sigrún. „En svo er eins og við höfum líka sagt í íbúasamtökunum, sem eru grasrótarsamtök, og fólkinu sem býr hérna í hverfinu að við erum alltaf boðin og búin til að aðstoða og reynum að gera það sem við getum.“
Lögreglumál Reykjavík Tengdar fréttir Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Lögreglumenn á varðsvæði lögreglustöðvar eitt hafa fengið tugi tilkynninga um innbrot frá mánaðamótum. Lögreglan telur verknaðinn ekki vera skipulagða glæpastarfsemi heldur tilviljunarkennd innbrot á heimili og í fyrirtæki. 14. júlí 2026 10:39 Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Sjá meira
Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Lögreglumenn á varðsvæði lögreglustöðvar eitt hafa fengið tugi tilkynninga um innbrot frá mánaðamótum. Lögreglan telur verknaðinn ekki vera skipulagða glæpastarfsemi heldur tilviljunarkennd innbrot á heimili og í fyrirtæki. 14. júlí 2026 10:39