Lögregla klippti á plöturnar Sigurgeir Þorkelsson skrifar 18. júlí 2026 18:22 Verkefni Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu tengdust mörg umferðareftirliti í dag. Vísir/Vilhelm Lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu stöðvuðu í dag ökumann sem ekki hafði staðið skil á vátryggingargreiðslu. Var skráningarmerki bifreiðarinnar, oft í daglegu tali kallað númeraplata, fjarlægt og bíllinn þannig tekinn úr umferð.
Eigandi bílsins mun ekki geta fengið skráningarmerkin til baka fyrr en greiðslu tryggingarinnar er lokið. Viðkomandi mun síðan þurfa að sækja merkin á Samgöngustofu og greiða 1200 króna greiðslugjald til að fá þau afhent. Þá komst ökumaður miðsvæðis í Reykjavík í kast við lögreglu og var handtekinn. Sá var undir áhrif áfengis og við skoðun kom í ljós að hann hafði aldrei öðlast ökuréttindi. Maðurinn verður vistaður í fangaklefa uns hann verður hæfur í skýrslutöku. Tilkynnt var um innbrot og þjófnað á veitingastað miðsvæðis. Málið er í rannsókn. Þá var lögregla kölluð að fjölbýlishúsi í Hlíðum þar sem tilkynnt hafði verið um óviðkomandi mannaferðir. Þegar lögregla kom á staðinn hafði hurð í anddyri verið spennt upp. Mikil innbrotahrina hefur geisað miðsvæðis í borginni. Í viðtali í kvöldfréttum okkar á fimmtudag sagði formaður Íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur að jafnvel væri reynt að brjótast inn til fólks um hábjartan dag og krafði lögregluna um frekari aðgerðir. Frá mánaðamótum hafa meira en sextíu innbrot verið tilkynnt miðsvæðis í Reykjavík.
Lögreglumál Tengdar fréttir Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Brotist var inn í þrjá verkfæragáma í Garðabæ og Kópavogi aðfaranótt gærdagsins og rafmagnsverkfæri tekin ófrjálsri hendi. Ekki er ljóst hve miklu var stolið en leiða má líkur að því að um talsverð verðmæti hafi verið að ræða. 18. júlí 2026 10:23 Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Þriðjudagskvöldið var frábært fyrir spænska undrabarnið Lamine Yamal en nú er komið í ljós að óprúttnir aðilar ætluðu að nýta sér fjarveru hans á heimsmeistaramótinu hinum megin við Atlantshafið. 15. júlí 2026 23:15 Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Eigendur veitingastaðanna Ramen Momo hafa ákveðið að hætta að taka við reiðufé vegna innbrotahrinu sem nú gengur yfir Reykjavík. Brotist var inn í svokallað preppeldhús veitingastaðanna í nótt og verðmætum var stolið. Þar voru þó engir peningar geymdir. 14. júlí 2026 14:42 Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist var inn í sælkerabakaríið Sweet Aurora Reykjavík í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt sunnudags og peningum stolið. Eigandinn er miður sín en afar þakklátur fyrir stuðning samfélagsins sem stendur með henni. Hún stefnir ótrauð á að halda fjögurra ára afmælisveislu verslunarinnar. 13. júlí 2026 10:53 Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent Fleiri fréttir Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Sjá meira
Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Brotist var inn í þrjá verkfæragáma í Garðabæ og Kópavogi aðfaranótt gærdagsins og rafmagnsverkfæri tekin ófrjálsri hendi. Ekki er ljóst hve miklu var stolið en leiða má líkur að því að um talsverð verðmæti hafi verið að ræða. 18. júlí 2026 10:23
Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Þriðjudagskvöldið var frábært fyrir spænska undrabarnið Lamine Yamal en nú er komið í ljós að óprúttnir aðilar ætluðu að nýta sér fjarveru hans á heimsmeistaramótinu hinum megin við Atlantshafið. 15. júlí 2026 23:15
Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Eigendur veitingastaðanna Ramen Momo hafa ákveðið að hætta að taka við reiðufé vegna innbrotahrinu sem nú gengur yfir Reykjavík. Brotist var inn í svokallað preppeldhús veitingastaðanna í nótt og verðmætum var stolið. Þar voru þó engir peningar geymdir. 14. júlí 2026 14:42
Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist var inn í sælkerabakaríið Sweet Aurora Reykjavík í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt sunnudags og peningum stolið. Eigandinn er miður sín en afar þakklátur fyrir stuðning samfélagsins sem stendur með henni. Hún stefnir ótrauð á að halda fjögurra ára afmælisveislu verslunarinnar. 13. júlí 2026 10:53