Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Sigurgeir Þorkelsson skrifar 19. júlí 2026 22:13 Miklar bikblæðingar voru á veginum og hann átti erfitt með að höndla álagið sem fylgdi umferðinni í dag. Skjáskot Miklar bikblæðingar eru á um þriggja kílómetra kafla vestan við Jökulsárlón. Mikill hiti hefur verið á svæðinu í dag og verður áfram næstu daga. „
Veghitinn hefur farið alveg upp í fjörutíu gráður,“ giskar G. Pétur Matthíasson upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar á. Mælir Veðurstofunnar á Kvískerjum sýnir að hiti á svæðinu náði tuttugu gráðum um klukkan tíu í morgun og fór ekki aftur undir tuttugu gráður fyrr en á áttunda tímanum í kvöld. Mestur mældist hitinn í 23,2 gráður klukkan eitt síðdegis. Gripið var til hefðbundinna aðgerða á vegkaflanum þar sem hann var sandaður til að draga úr skaða bikblæðinganna. Þá var hámarkshraði á kaflanum lækkaður niður í 50 kílómetra á klukkustund. Viðvörun fyrir steinkast og bikblæðingar hefur verði sett inn á upplýsingavef Vegagerðarinnar. Einnig var gripið til þess ráðs að lækka hámarkshraða á kaflanum. umferdin.is Á upplýsingavef Vegagerðarinnar um færð og ástand vega, umferdin.is, má sjá að varað hefur verið við steinkasti og bikblæðingu á vegkaflanum frá klukkan því á sjöunda tímanum í dag. Einnig er varað við bikblæðingum austan við Reyðarfjarðarbæ en ekki má sjá slíkar viðvaranir á fleiri stöðum. „Þetta er í raun minna en búast hefði mátt við, miðað við,“ segir Pétur og vísar þar í hita og einstakt blíðviðri sem leikið hefur við Íslendinga á austari hluta landsins síðustu daga. Fréttastofu barst myndband þar sem sjá má hvernig þungaflutningabíll spænir upp klæðningunni. „Það er svo gríðarlega mikil umferð þarna að það myndi engu breyta að setja á þungatakmarkanir,“ segir Pétur aðspurður um hvort ekki þurfi að grípa til takmarkana á umferð þegar aðstæður eru líkt og í dag. „Það hefur komið til þess að við höfum beitt þungatakmörkunum, en það er kannski frekar í vetrarblæðingunum,“ segir Pétur til frekari upplýsinga. Eins og lesendum er eflaust kunnugt um hafa landsmenn fært sig austur á land í slíkum mæli síðustu daga að mögulega mætti tala um þjóðflutningana miklu. Hefur það haft sín áhrif, sundlaugin á Kirkjubæjarklaustri hefur þurft að loka fyrir nýjum gestum aðra hverja klukkustund og varað hefur verið við yfirvofandi vatnsskorti á Hallormsstað. Þá er Jökulsárlón vinsæll áningarstaður ferðamanna og er því ekki ofsögum sagt að umferð hafi verið mikil.
Umferð Umferðaröryggi Samgöngumál Sveitarfélagið Hornafjörður Tengdar fréttir Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Bifhjólakappinn Ómar Geirsson telur að bikblæðing hafi orðið til þess að eldur kviknaði í bifhjóli hans, sem hafði skömmu áður staðist ástandsskoðun með glæsibrag. 17. júlí 2026 12:49 Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Bikblæðinga hefur orðið vart um nánast allt land eftir hlýindin síðustu daga og staðan orðin mjög slæm á Norðurlandi. 15. júlí 2025 12:06 Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira
Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Bifhjólakappinn Ómar Geirsson telur að bikblæðing hafi orðið til þess að eldur kviknaði í bifhjóli hans, sem hafði skömmu áður staðist ástandsskoðun með glæsibrag. 17. júlí 2026 12:49
Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Bikblæðinga hefur orðið vart um nánast allt land eftir hlýindin síðustu daga og staðan orðin mjög slæm á Norðurlandi. 15. júlí 2025 12:06