Vinsælasta kvikmyndin í Kína er um kvennafótbolta og kungfú Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. júlí 2026 15:32 Veggspjald kvikmyndarinnar Kung Fu Soccer sem er nú að slá í gegn í Kína. Kung Fu Soccer Kvikmyndaleikstjórinn Stephen Chow frá Hong Kong er mættur aftur með nýja kvikmynd og nú hefur hann kvennaknattspyrnulið að stjörnum sínum. Myndin er vinsæl en viðbrögðin frá Suður-Kóreu eru allt önnur þar sem vonda liðið í myndinni kemur þaðan.
Kung Fu Soccer er eins konar arftaki kvikmyndarinnar Shaolin Soccer, en í stað bræðrahópsins úr upprunalegu myndinni er nú komið kvennaknattspyrnulið. Myndin Shaolin Soccer sló í gegn út um allan heim árið 2001 og hefur lengi verið beðið eftir framhaldsmynd. Nú er hún komin en hefur sætt gagnrýni vegna atriða sem virðast gera grín að suðurkóreska kvennalandsliðinu í fótbolta. Stephen Chow's 'Kung Fu Soccer' Blasts Past $200 Million at China Box Office https://t.co/8GTil2eUkz— The Hollywood Reporter (@THR) July 20, 2026 Myndin, sem var frumsýnd í Kína 11. júlí, fjallar um kvennalið í fótbolta sem á í erfiðleikum en notar bardagalistatækni í ólíklegri tilraun til að ná árangri. Tekjur hennar fóru yfir 600 milljónir júana í miðasölu innan þriggja daga frá frumsýningu, samkvæmt kínverskum fjölmiðlum, eða meira en ellefu milljarða íslenskra króna. Umdeildu atriðin sýna suðurkóreskt kvennalið í fótbolta sem beitir röð brota og óheiðarlegra aðferða en leikmennirnir eru einnig sýndir með „hringlaga“ augnlinsur, sem láta lithimnur notandans virðast stærri. Þær eru líka með þráhyggju fyrir förðun sinni sem er enn eitt skotið á Suður-Kóreu. Seo Kyung-duk, prófessor við Sungshin-kvennaháskólann í Seúl og skeleggur aðgerðasinni í málum sem tengjast fullveldi Suður-Kóreu, gagnrýndi atriðin og sagði að jafnvel í heimi skáldskapar gætu slíkar lýsingar styrkt ranghugmyndir um kóreska menningu. „Á Vetrarólympíuleikunum í Peking 2022 gaf útvarps- og sjónvarpsstofa Peking út stuttmyndina Fly! Light On The Ice, sem sýndi kóreska íþróttamenn sem síbrotamenn. Það er áhyggjuefni að sjá svipuð tilfelli endurtaka sig,“ sagði Seo við staðbundinn fréttamiðil. „Framleiðsluteymið ætti að leiðrétta umdeildu atriðin áður en myndin verður gefin út erlendis í næsta mánuði,“ bætti hann við. View this post on Instagram A post shared by The Daily W (@thedailywsports)
Kína Fótbolti Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Sjá meira