Svaf ekki fyrir fagnaðarlátum á Spáni Valur Páll Eiríksson skrifar 21. júlí 2026 11:00 Sigurður Bjartur Hallsson fer ágætlega af stað með Mérida á Spáni. Mynd/Mérida Spánn varð í gærkvöld heimsmeistari karla í fótbolta í annað sinn eftir sigur á Argentínu í úrslitum í New York vestanhafs. Íslendingur á Spáni svaf lítið fyrir fagnaðarlátum í fyrrinótt.
Spánn vann Argentínu eftir framlengdan leik í gær. Segja má að úrslitaleikurinn hafi verið tíðindalítill stærstan part, í það minnsta hvað marktækifæri varðar. Spánverjar voru með öll völd á vellinum en tókst ekki að koma boltanum í netið. Framlengja þurfti leikinn en Argentínumenn voru þar manni færri vegna rauðs spjalds Enzo Fernández seint í leiknum. Ferran Torres tókst loks að brjóta ísinn í framlengingunni eftir orrahríð að marki þeirra argentínsku. Það mark dugði fyrir sigrinum og heimsmeistaratitlinum sem Spánn vinnur í annað sinn og er nú bæði ríkjandi heims- og Evrópumeistari. Lítið sofið og frí í heila viku Sigurður Bjartur Hallsson leikur sem atvinnumaður með Merida í spænsku C-deildinni og fögnuður heimamanna fór ekki fram hjá honum. „Algjörlega. Það var erfitt að sofa, þeir voru að fagna langt fram á nótt. Svo er verið að tala um að fólk fái frí í heila viku frá vinnu vegna þess að þeir urðu heimsmeistarar,“ segir Sigurður sem hitti hressa liðsfélaga á æfingu í gær. „Liðsfélagarnir eru allir í sjöunda himni og mjög sáttir.“ Spánn setti met og fékk aðeins á sig eitt mark allt mótið. Það má með sanni segja að um sé að ræða verðskuldaða heimsmeistara. „Ég er bara búinn að vera hérna í viku og sá undanúrslitaleikinn. Það var allt tryllt þegar þeir unnu Frakka. Það er gaman að sjá frá fyrstu hendi hvað þetta hefur mikil áhrif á daglegt líf fólks,“ „Þeir fá á sig eitt mark í allri keppninni. Þeir eru með undir þrjá í xG á sig í einhverjum átta leikjum. Þeir eru mjög vel að þessu komnir. Þeir fóru líka erfiða leið í útsláttarkeppninni, slá út Portúgal, Belga, Frakka og svo Argentínumenn í úrslitaleiknum. Ég held þetta sé liðið sem var best að þessu komið,“ segir Sigurður í Sportpakkanum á Sýn. Fréttina má sjá í spilaranum.
Spænski boltinn Spánn HM 2026 í fótbolta Íslendingar erlendis Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Sjá meira