Lífið

Hvað veistu um… Titanic?

Atli Ísleifsson skrifar
„I'm flying, Jack!“
„I'm flying, Jack!“ Getty/Grafík/Vísir

Titanic var breskt farþegaskip sem talið var eitt það stærsta og glæsilegasta á sínum tíma. Skipið lagði af stað í sína jómfrúarsiglingu árið 1912 og eins og endaði á því að sökkva á Norður-Atlantshafi.

Árið 1997 kom út kvikmyndin Titanic í leikstjórn James Cameron þar sem sagði frá ástarsögu þeirra Jack og Rose um borð í skipinu á sama tíma og slysið á sér stað.

En hvað veistu um Titanic og hina vinsælu kvikmynd?

Hvað veistu um…? er liður á Vísi á miðvikudagskvöldum þar sem lesendur fá tækifæri til að kanna þekkingu sína á ákveðnu máli og geta skorað svo á vini, fjölskyldu og samstarfsmenn.

Áður hefur meðal annars verið spurt um:

Öll fyrri kvissin má svo finna á undirsíðu Hvað veistu um...?

Taktu Titanic-kvissið að neðan!


Tengdar fréttir

Hvað veistu um... göngu­leiðir?

Líklegt má telja að fjöldi fólks hafi lagt land undir fót í sumar og notið íslenskrar náttúru á einni af þeim fallegu, merktu gönguleiðum sem er að finna víða um land. Gönguferðir eru enda vinsæl leið til að upplifa landið, fá frí frá amstri dagsins, hvort sem það er í einveru eða góðum félagsskap.

Hvað veistu um… textana hans Bubba?

Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens er einn áhrifamesti texta- og tónlistarmaður Íslendinga. Textar hans eru margir fyrir löngu orðnir ódauðlegir þar sem hann fjallar meðal annars um ástina, söknuð, einmanaleika, samfélagið og lífsbaráttuna almennt.

Hvað veistu um… London?

London er ein fjölmennasta borg Evrópu og höfuðborg Bretlands. Borgin á sér langa og viðburðaríka sögu og má þar finna bæði sögufrægar byggingar og nýrri hverfi þar sem nútímaarkitektúr fær að njóta sín. London er einnig ein helsta menningar- og viðskiptamiðstöð álfunnar með fjölbreyttu mannlífi, söfnum, leikhúsum, verslunum og veitingastöðum.

Hvað veistu um… Mos­fells­bæ?

Mosfellsbær er sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu, staðsett norðan við Reykjavík. Bærinn er þekktur fyrir fallegt náttúrulegt umhverfi með fjöllum, dölum og strönd.

Hvað veistu um... Snæ­fells­nes?

Snæfellsnes er langt og fallegt nes á Vesturlandi með Faxaflóa sunnanmegin og Breiðafjarðar fyrir norðan. Meðfram nesinu eru svo fjallgarður og þar yst má finna Snæfellsjökul og þjóðgarðinn þar um kring.

Hvað veistu um... flug­velli?

Flugvellir eru um margt sérstakir staðir þar sem margir fyllast eftirvæntingu eftir nýjum ævintýrum og stressi vegna brottfara.

Hvað veistu um… Eurovision?

Fyrra undanúrslitakvöld Eurovision fór fram í Austurríki í gærkvöldi og en seinna undanúrslitakvöldið á dagskrá annað kvöld og verður þá ljóst hvaða 25 framlög verða flutt á úrslitakvöldinu á laugardaginn.

Hvað veistu um… pasta?

Líklegt má telja að pasta sé á borðum fjölmargra Íslendinga í dag enda auðvelt að elda og hentar vel með margs konar sósum, grænmeti, kjöti eða sjávarfangi.

Hvað veistu um... Kristrúnu Frosta­dóttur?

Kristrún Frostadóttir hefur gegnt embætti forsætisráðherra Íslands í um eitt og hálft ár, en hún hefur leitt ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins frá árslokum 2024.

Hvað veistu um… árið 2010?

Tíminn líður og nú eru víst liðin sextán ár frá árinu 2010 – árinu þegar WikiLeaks var reglulega í fréttum, Aulinn ég var frumsýndur og kosningar til stjórnlagaþings fóru fram.

Hvað veistu um… Stellu í orlofi?

Kvikmyndin Stella í orlofi er íslensk gamanmynd frá árinu 1986 sem fjallar um Stellu sem heldur í sumarbústaðaferð og lendir þar í alls kyns ævintýrum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.