Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. júlí 2026 10:01 Stephen Curry hefur átt magnaðan feril og honum er ekki lokið. Ezra Shaw/Getty Images Stephen Curry er að skrifa nýjan kafla í sögu Naismith-heiðurshallarinnar í körfubolta með því að afreka það sem enginn annar spilandi leikmaður hefur gert í nærri 75 ára sögu heiðurshallarinnar.
Curry, sem er af flestum talinn vera besta skyttan í sögu NBA, er heiðraður með sérstakri einkasýningu innan veggja hennar. „Það er erfitt að koma því í orð að vera hluti af heiðurshöllinni í körfubolta á þennan hátt,“ sagði Curry í tilkynningu. He changed the game for good. And now, he makes history yet again.Beginning this Friday, Stephen Curry will become the first active player EVER to have an exhibit at the @Hoophall 👏 pic.twitter.com/pjKldCPc8J— Golden State Warriors (@warriors) July 21, 2026 „Þegar ég hugsa um feril minn hugsa ég um fólkið sem trúði á mig, vinnuna sem var lögð í þetta þegar enginn fylgdist með og augnablikin sem mótuðu mig innan vallar sem utan. Að fá þá sögu sagða á meðan ég er enn að spila er eitthvað sem ég tek ekki sem sjálfsögðum hlut,“ sagði Curry. Sýningin, sem ber heitið „Stephen Curry: Beyond the Arc“ eða „Stephen Curry: Fyrir utan þriggja stiga línuna“ og verður hún opnuð almenningi í dag. Þessi sýning mun innihalda muni frá Ólympíuleikum og meistaratitlum hans í NBA, keppnisbúninga og myndefni úr safni sem sýnir vegferð Curry frá því að vera lítt þekktur nýliði yfir í að verða margverðlaunaður fjórfaldur NBA-meistari. „Stephen hefur ekki aðeins endurskilgreint hvernig körfubolti er spilaður, heldur hefur hann einnig sett fordæmi fyrir því hvað það þýðir að vera fyrirmynd,“ sagði John Doleva, forseti og forstjóri heiðurshallarinnar. „Þetta er sannarlega söguleg stund fyrir okkur og fyrir körfuboltaáhugafólk um allan heim.“ Curry er að hefja sitt átjánda keppnistímabil sem atvinnumaður og hefur lýst því yfir að hann vilji spila í að minnsta kosti tvö tímabil í viðbót. Búist er við að hann hefji viðræður um framlengingu samnings við Golden State Warriors þegar hann verður gjaldgengur til þess í lok ágúst. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=HIa_n2fs0ho">watch on YouTube</a>
NBA Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Hættir með landsliðinu Fótbolti María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Fótbolti Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn Björgvin Karl og liðsfélagar hans í þriðja sætinu eftir fyrsta dag Sport Haaland dýrastur í sögu Fantasy Enski boltinn Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Fleiri fréttir Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Sjá meira