Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Samúel Karl Ólason skrifar 24. júlí 2026 07:44 Þrjár ungar stúlkur voru myrtar í árásinni og átta börn til viðbótar voru særð, auk tveggja fullorðinna. EPA/ADAM VAUGHAN Maður sem myrti þrjár ungar stúlkur og stakk mörg önnur börn í hnífaárás í Southport Á Englandi árið 2024 hefur verið fluttur úr fangelsi og vistaður á geðdeild. Flutningarnir eiga engin áhrif að hafa á 52 ára dóm hans.
Í júlí 2024 gekk Axel Rudakubana inn á dansnámskeið fyrir börn í Southport og stakk þar þrjár stúlkur til bana. Þá særði hann átta önnur börn og tvo fullorðna. Árásin leiddi til umfangsmikilla mótmæla og óeirða á Englandi en Rudakubana var þá sautján ára gamall. Hann fæddist í Wales en foreldrar hans eru innflytjendur frá Rúanda. Stúlkurnar sem dóu hétu Alice da Silva Aguiar (Níu ára), Bebe King (Sex ára) og Elsie Dot Stancombe (Sjö ára). „Það er góður hlutur að þessi börn eru látin, ég er svo glaður,“ sagði Rudakubana við lögreglu þegar hann var handtekinn á vettvangi árásarinnar. Hann var dæmdur í 52 ára fangelsi vegna árásarinnar og vistaður í Belmarsh-fangelsinu fræga. Hann hefur nú verið fluttur á geðdeild á Broadmoor-sjúkrahúsinu, samkvæmt frétt Sky News. Þar hafa aðrir þekktir og umdeildir morðingjar Englands verið fluttir á árum áður. Samkvæmt upplýsingum frá dómsmálaráðuneytinu mun breytingin hafa engin áhrif á þann tíma sem hann á að afplána. Hann mun verða vistaður á hámarksöryggisdeild á sjúkrahúsinu, þar til metið verður svo að hann geti aftur verið fluttur í fangelsið og mun hann „afplána hvern einasta dag“ af dóminum, samkvæmt talsmanni ráðuneytisins sem ræddi við Sky.
Erlend sakamál England Bretland Hnífaárás í Southport Tengdar fréttir Játaði að hafa myrt þrjár ungar stúlkur í Southport Átján ára gamall karlmaður játaði að hann hefði stungið þrjár ungar stúlkur til bana og sært tíu aðra í árás í Southport á Englandi þegar réttarhöld hófust yfir honum í morgun. Hann viðurkenndi einnig að hafa eitrið rísín og bækling frá hryðjuverkasamtökunum al-Qaeda í fórum sínum. 20. janúar 2025 12:33 Varð vitni að árásinni sem varð systur hennar að bana Foreldrar Bebe King, sex ára stúlku sem var stungin til bana í árásinni í Southport í Bretlandi í lok júlímánaðar, segja eldri systur hennar hafa orðið vitni að árásinni en komist undan. 10. ágúst 2024 13:51 Tveir handteknir fyrir að dreifa röngum upplýsingum á netinu Lögregluyfirvöld á Bretlandseyjum hafa handtekið 55 ára konu fyrir að birta færslu á samfélagsmiðlum með röngum upplýsingum um árásarmanninn sem varð þremur stúlkum að bana í Southport í síðustu viku. 9. ágúst 2024 07:49 Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Fleiri fréttir Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Sjá meira
Játaði að hafa myrt þrjár ungar stúlkur í Southport Átján ára gamall karlmaður játaði að hann hefði stungið þrjár ungar stúlkur til bana og sært tíu aðra í árás í Southport á Englandi þegar réttarhöld hófust yfir honum í morgun. Hann viðurkenndi einnig að hafa eitrið rísín og bækling frá hryðjuverkasamtökunum al-Qaeda í fórum sínum. 20. janúar 2025 12:33
Varð vitni að árásinni sem varð systur hennar að bana Foreldrar Bebe King, sex ára stúlku sem var stungin til bana í árásinni í Southport í Bretlandi í lok júlímánaðar, segja eldri systur hennar hafa orðið vitni að árásinni en komist undan. 10. ágúst 2024 13:51
Tveir handteknir fyrir að dreifa röngum upplýsingum á netinu Lögregluyfirvöld á Bretlandseyjum hafa handtekið 55 ára konu fyrir að birta færslu á samfélagsmiðlum með röngum upplýsingum um árásarmanninn sem varð þremur stúlkum að bana í Southport í síðustu viku. 9. ágúst 2024 07:49