Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. júlí 2026 12:59 Brown mætir í Southwark Crown dómshúsið í London í morgun. AP/Stefan Rousseau Bandaríski söngvarinn Chris Brown hefur játað sök fyrir ofbeldisfulla háttsemi á næturklúbbi í Lundúnum árið 2023. BBC greinir frá.
Brown, sem er 37 ára, átti að mæta fyrir dóm í október vegna alvarlegrar ákæru sem hann neitaði sök í. Hann var meðal annars ákærður fyrir tilraun til að valda alvarlegum líkamsmeiðingum, líkamsárás sem olli meiðslum og fyrir að hafa haft hættulegt vopn undir höndum. Vopnið umrædda var tekílaflaska. Brown kom fyrir dóm í London í dag og játaði ofbeldisfulla háttsemi en aðrir ákæruliðir voru felldir niður. Brown var aðeins í dómsalnum í fimm mínútur og veifaði til aðdáenda sem voru mættir við dómshúsið klæddur ljósum jakkafötum og með derhúfu. Refsing Brown verður ákveðin fyrir dómi í október. Meðákærði, hinn fertugi Omololu Akinlolu sem er rappari og kemur fram undir listamannsnafninu Hoody Baby, játaði einnig sök fyrir ofbeldisfulla háttsemi. Ofbeldið sem þeir játuðu fólst í því að hafa farið fram með eða hótað öðrum ofbeldi með þeim hætti að viðkomandi óttaðist um öryggi sitt. Tónleikar á morgun Árásin átti sér stað á einkaklúbbnum Tape Venue þann 19. febrúar 2023. Málið hefur sett svip sinn á tónleikaferðalag Brown sem hefur gegn fimm milljóna dala tryggingafé fengið að ferðast um heiminn svo framarlega sem hann láti vegabréf sitt af hendi í hverju landi sem hann heimsækir. Brown sat um tíma í gæsluvarðhaldi í London eftir málið og þakkaði fangelsinu fyrir á tónleikum í Manchester í fyrrasumar. Vistin hefði verið mjög góð. Þá þakkaði hann áhorfendum stuðninginn. Telja má fullvíst að Brown hraði ferð sinni aftur til Bandaríkjanna en hann er með tónleika í Nashville annað kvöld. Frétt BBC um málið.
Bandaríkin England Tónlist Hollywood Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Fleiri fréttir Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Sjá meira