Körfubolti

Trump kallar LeBron James kynþáttahatara

Andri Broddason skrifar
Donal Trump þykir Michael Jordan vera betri leikmaður í körfubolta heldur en LeBron James
Donal Trump þykir Michael Jordan vera betri leikmaður í körfubolta heldur en LeBron James Samsett/Getty

Donald Trump forseti Bandaríkjanna sagði að LeBron James gæti verið kynþáttahatari þegar hann var spurður hver honum fyndist vera besti körfuboltamaður allra tíma.

Á blaðamannafundi í Hvíta húsinu var Donald Trump forseti Bandaríkjanna spurður hvort honum fyndist Michael Jordan eða LeBron James vera betri í körfubolta. Hann byrjaði á að tala vel um Jordan en hafði athyglisverða hluti að segja um James.

„Michael Jordan er vinur minn og ég spila golf með honum. Hann er mjög góður maður. Kannski er LeBron kynþáttahatari eða honum líkar ekki við Trump, ég veit það ekki.“

LeBron James hefur opinberlega gagnrýnt störf Donald Trump sem forseta Bandaríkjanna og hefur einnig stutt mótherja Trump í kosningabaráttu. Það situr greinilega enn í Trump að LeBron James hafi gagnrýnt störf hans.

Í gær tilkynnti LeBron James að hann muni skrifa undir samning hjá Philadelphia 76ers í NBA-deildinni eftir að hafa verið hjá LA Lakers síðan árið 2019. Trump hefur ekki fundist það vera merkilegar fréttir og segir að honum finnist Michael Jordan vera besti körfuboltaleikmaður allra tíma.

„Mér líkar einungis vel við fólk sem líkar vel við mig, svo ég segi að Michael Jordan sé betri allan daginn.“

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×